Fréttir

Landris heldur áfram við Svartsengi – Kvikusöfnun komin í 28 milljónir rúmmetra
Líkanreikningar benda til þess að rúmmálsbreyting undir Svartsengi séu á bilinu 27,5 - 29,1 milljónum rúmmetra. Matið byggir á GNSS-mælingum og InSAR-gögnum og sýna svörtu línurnar 95% óvissubil.
Þriðjudagur 21. júlí 2026 kl. 16:18

Landris heldur áfram við Svartsengi – Kvikusöfnun komin í 28 milljónir rúmmetra

Landris við Svartsengi mælist enn hægt en stöðugt og heldur kvika áfram að safnast fyrir undir svæðinu. Hættumat Veðurstofunnar er óbreytt og gildir til lok september.

Nýjustu líkanreikningar, sem byggja á GNSS- og gervihnattagögnum (InSAR), sýna að um 28,3 milljónir rúmmetra af kviku hafa safnast undir Svartsengi frá því að síðasta eldgos hófst þann 16. júlí 2025 (með óvissubili frá 27,5 til 29,1 milljón rúmmetra).

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

Lítil skjálftavirkni en stuttur fyrirvari

Jarðskjálftavirkni á Sundhnúksgígaröðinni og við Grindavík er áfram lítil. Samt sem áður eykst þrýstingur í kerfinu jafnt og þétt með áframhaldandi kvikusöfnun.

Líklegasta sviðsmyndin er að kvikuhlaup fari frá Svartsengi yfir í Sundhnúksgígaröðina, sem gæti í kjölfarið leitt til eldgoss.

Aðvörun: Gera verður ráð fyrir stuttum fyrirvara ef til kvikuhlaups eða goss kemur. Í fyrri atburðum hefur fyrirvarinn verið allt frá 20 mínútum upp í rúmar fjórar klukkustundir.

Hættumat stendur óbreytt og gildir til 30. september, segir í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands.

Eignasalan
Eignasalan