Karlakórinn
Karlakórinn

Fréttir

Kísilverksmiðjan ekki gangsett á ný
Fimmtudagur 1. desember 2022 kl. 14:34

Kísilverksmiðjan ekki gangsett á ný

Bankinn telur fullreynt að þarna verði rekin kísilverksmiðja og því tekur við nýr kafli sem miðar að því að flytja verksmiðjuna eða færa henni nýtt hlutverk.“

Arion banki og PCC hafa slitið formlegum viðræðum um möguleg kaup PCC á kísilverksmiðjunni í Helguvík. Samhliða hefur Arion banki sagt upp raforkusamningi við Landsvirkjun þar sem framleiðsla kísils var forsenda samningsins. Því er allt útlit fyrir að kísilverksmiðjan í Helguvík verði ekki gangsett á ný og að hún verði flutt eða henni fært nýtt hlutverk, segir í frétt frá Arion banka.

Þar segir einnig: „Arion banki eignaðist kísilverksmiðjuna árið 2018 í kjölfar gjaldþrots fyrri eiganda, United Sílicon hf. Síðan þá hefur dótturfélag bankans, Stakksberg ehf., unnið endurbótaáætlun fyrir verksmiðjuna og leitað að hæfum kaupendum sem gætu rekið verksmiðjuna með ábyrgum hætti. Að höfðu samráði við viðeigandi stjórnvöld var nýju umhverfismati, sem byggðist á endurbótaáætluninni, lokið og sýndu fjárfestar verksmiðjunni umtalsverðan áhuga. Arion banki gerði þá kröfu að mögulegir kaupendur væru traustir aðilar sem byggju yfir yfirgripsmikilli reynslu af rekstri kísilvera.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Í upphafi þessa árs gekk bankinn til einkaviðræðna við PCC sem hefur starfrækt kísilverksmiðju á Bakka í góðri sátt við nærsamfélagið. Það var mat bankans að PCC byggi yfir nauðsynlegri þekkingu og reynslu til að starfrækja verksmiðjuna í Helguvík með farsælum hætti. Voru fulltrúar PCC og Arion banka sammála um að forsenda þess að farið yrði af stað aftur með kísilframleiðslu í Helguvík væri  að slíkt yrði gert í góðri sátt við yfirvöld og íbúa Reykjanesbæjar. PCC hefur undanfarið kynnt metnaðarfull áform sín fyrir ýmsum hagaðilum og er niðurstaða þeirrar vinnu að félagið telur ekki grundvöll fyrir áframhaldandi viðræðum um kaup PCC á kísilverksmiðjunni.

 Í kjölfar þessarar niðurstöðu mun Arion banki horfa til sölu á þeim innviðum sem eru til staðar í Helguvík, annað hvort til flutnings eða með það að markmiði að koma þar upp annars konar starfsemi en kísilframleiðslu. Viðræður eru þegar í gangi við nokkra aðila, innlenda og erlenda, í þessu sambandi. Ákvörðunin hefur ekki áhrif á bókfært verðmat eignarinnar, en verðmat verður endurmetið með hliðsjón af þróun þessara viðræðna.“

 Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka:

Saga kísilversins í Helguvík er vel þekkt. Við höfum litið á það sem skyldu okkar að reyna til þrautar að nýta þá innviði og þau verðmæti sem þarna hefur verið fjárfest í. Þar höfum við horft til allra hagaðila, ekki síst íbúa Reykjanesbæjar sem urðu fyrir óþægindum á þeim stutta tíma sem verksmiðjan var starfrækt. Við unnum metnaðarfulla endurbótaáætlun á verksmiðjunni sem fór í gegnum umhverfismat og leituðum að rekstraraðila með nauðsynlega þekkingu og getu til að starfrækja verksmiðjuna á umhverfisvænan máta, í sátt við samfélagið. Bankinn telur fullreynt að þarna verði rekin kísilverksmiðja og því tekur við nýr kafli sem miðar að því að flytja verksmiðjuna eða færa henni nýtt hlutverk.“