Fréttir

Guðbrandur vill leiða lista Viðreisnar í Suðurkjördæmi
Þriðjudagur 16. febrúar 2021 kl. 16:53

Guðbrandur vill leiða lista Viðreisnar í Suðurkjördæmi

Guðbrandur Einarsson, forseti bæjarstjórnar Reykjanesbæjar, gefur kost á sér til þess að leiða lista Viðreisnar í Suðurkjördæmi í komandi alþingiskosningum.

„Ég tel að reynsla mín eigi að geta nýst flokknum og hjálpað til við að ná þingsæti í kjördæminu á nýjan leik,“ segir Guðbrandur í tilkynningu um framboðið.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Guðbrandur hefur unnið að sveitarstjórnarmálum í rúm 20 ár og gegnir nú stöðu forseta bæjarstjórnar Reykjanesbæjar ásamt því að sitja í bæjarráði sem hann hefur gert mörg undanfarin ár. Þá starfaði Guðbrandur einnig sem formaður og framkvæmdastjóri Verslunarmannafélags Suðurnesja í rúm 20 ár, sem formaður Landssambands ísl. verslunarmanna í sex ár þar sem hann sat í stjórn í tæp 20 ár. Þá tók Guðbrandur einnig þátt í starfi Alþýðusambands Íslands um 14 ára skeið, bæði sem miðstjórnarmaður og sem fulltrúi sambandsins í ýmsum nefndum og ráðum.

„Samfélagsmál í víðum skilningi þess orðs hafa verið mér hugleikin um árabil og ég hef áhuga á því að vinna, á vettvangi Viðreisnar, að því að bæta samfélagið okkar, þar sem almannahagsmunir eru hafðir að leiðarljósi. Það er nauðsynlegt fyrir þjóðina að frjálslynd öfl á miðju stjórnmálanna nái árangri í næstu kosningum og fyrir því vil ég berjast,“ segir Guðbrandur Einarsson. Hann er giftur Margréti Sumarliðadóttur, hársnyrtimeistara og eiga þau fimm uppkomin börn.