Fréttir

Grindavík opnuð og ekki stafi ógn af hraunrennsli í bænum
VF/Ísak Finnbogason
Þriðjudagur 19. mars 2024 kl. 10:13

Grindavík opnuð og ekki stafi ógn af hraunrennsli í bænum

Lítil sem engin hreyfing er nú á hraunrennsli bæði inn í Svartsengi og eins fyrir ofan Suðurstrandarveg. Það er mat lögreglustjóra að ekki stafi ógn af hraunrennsli inni í Grindavík við núverandi aðstæður. Þá er fylgst vel með hraunrennsli fyrir ofan Suðurstrandarveg sem ógnar ekki veginum eins og staðan er í dag. Fylgst er vel með mengun inn á merktu hættusvæði. Í dag er vindátt hagstæð og ekki ætti að gæta mengunar inn í Grindavík. Ef og þegar hætta er talin á að loftmengun ógni heilsu manna getur komið til þess að aðgengi inn í Grindavík verði takmarkað.  
 
Þeir sem eiga erindi inn í Grindavík er bent á að athuga reglulega með loftgæði á svæðinu inn á vefsíðu Umhverfisstofnunar, á slóðinni: https://loftgaedi.is/ 
 
Með hliðsjón af framansögðu er það ákvörðun lögreglustjórans á Suðurnesjum að heimila Grindvíkingum og þeim sem starfa Í Grindavík að dvelja og starfa í bænum. Ekki er mælt með því að fólk dvelji eða starfi í bænum að næturlagi.   
 
Mikilvægt er að hafa neðangreint í huga:
 
Íbúar og starfsmenn fari inn í bæinn á eigin ábyrgð. Hver og einn verður að bera ábyrgð á eigin athöfnum eða athafnaleysi. Lögreglustjóri tekur skýrt fram að Grindavík er ekki staður fyrir barnafólk eða börn að leik.   Þar eru ekki starfræktir skólar og innviðir eru í ólestri. Lögreglustjóri mælir alls ekki með því að íbúar dvelji í bænum.

Jarðsprungur eru víða í og við bæinn og sprungur geta opnast án fyrirfara. Hætta er á jarðfalli ofan í sprungur og sprunguhreyfingum. Hætta er á gasmengun. Þá getur hætta stafað af hraunflæði.
 
Mótvægisaðgerðir eru og hafa verið í gangi sem felast m.a. í kortlagningu, jarðkönnun, jarðsjármælingum og sjónskoðun.  Þá hafa sprungur verið girtar af.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Opin svæði í og við Grindavík hafa ekki verið skoðuð sérstaklega. Fólk haldi sig við götur bæjarins og forðist að

Grindavík er lokuð öllum öðrum en viðbragðsaðilum, íbúum bæjarins, starfsmönnum fyrirtækja bæjarins, verktökum og þeim sem þurfa að aðstoða íbúa. Fjölmiðlafólk hefur heimild til að fara inn í bæinn með sama hætti og íbúar og starfsmenn fyrirtækja.   

Þá er það forsenda fyrir opnun inn í Bláa Lónið og Northern Light Inn að hægt verði að opna flóttaleið inn á Grindavíkurveg og inn á Reykjanesbraut. Þannig háttaði til þegar starfsemi hófst þar að nýju eftir eldgosið í febrúar.
 
Enn eru hættur á svæðinu og aðstæður innan og utan hættusvæða geta breyst með litlum fyrirvara.  Þá geta hættur leynst utan merktra svæða. 
 
Lokunarpóstar eru við gatnamót Grindavíkurvegar og Reykjanesbrautar, Nesveg og Suðurstrandarveg. Flóttaleiðir frá Grindavík eru um Nesveg og Suðurstrandarveg.
 
Til að vekja athygli fólks á aðsteðjandi hættum hafa verið settir upp þrjár viðvörunarflautur í Grindavík. Þá er ein slík við Bláa lónið og önnur við HS orku í Svartsengi. Þær hafa verið notaðar með góðum árangri.
 
Fáir Grindvíkingar kjósa að dvelja í bænum næturlangt. Þeim er það heimilt en lögreglustjóri mælir alls ekki með því og getur ekki ábyrgst öryggi þeirra við núverandi aðstæður.
 
Unnið er allan sólarhringinn við gerð varnargarða á virkum dögum. Píparagengi hefur störf að nýju í dag. Framkvæmdir við að hleypa köldu vatni á bæinn eru í undirbúningi hjá Grindavíkurbæ í samvinnu við almannavarnir.
 
Viðbragðsaðilar eru við störf í Grindavík og lögregla og slökkvilið sinna lögbundnu eftirliti í bænum eins og verið hefur.  Þá er sjúkrabíll staðsettur í Grindavík alla daga á dagtíma.
 
Framangreint fyrirkomulag verður tekið til endurskoðunar föstudaginn 22. mars 2024 eða fyrr eftir atvikum.