Fréttir

Farþegum fækkar mikið milli ára
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
föstudaginn 7. júní 2019 kl. 16:05

Farþegum fækkar mikið milli ára

Fjöldi erlendra farþega til Íslands í ár fækkar um 388 þúsund milli ára og verður 1.927 þúsund. Skiptifarþegum sem fara um Keflavíkurflugvöll fækkar um 43 prósent frá í fyrra, úr tæpum 3,9 milljónum í tæpar 2,2 milljónir. Þar munar tæplega 1,7 milljónum farþega. Mestu munar um brotthvarf WOW air.

Uppfærðar tölur um farþegafjölda í júní og til loka desember benda til að heildarfjöldi farþega sem fari um Keflavíkurflugvöll árið 2019 verði um 7,3 milljónir.
Útlit er fyrir að íslenskir farþegar um Keflavíkurflugvöll verði um 631 þúsund árið 2019 sem er 37 þúsund færri en í fyrra. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Isavia.

Farþegaspá Isavia 2019 fyrir Keflavíkurflugvöll er unnin út frá upplýsingum um afgreiðslutíma sem flugfélögin hafa tryggt sér. Farþegaspáin byggir á upplýsingum úr kerfum Isavia, til viðbótar við þær fréttir sem borist hafa af flugfélögum. Spáin er að því leyti unnin með öðrum hætti en áður. Isavia telur hinsvegar að fyrir liggi nægar upplýsingar til að gefa út uppfærða farþegaspá og svara þannig ákalli markaðarins. Breytist forsendur verður þessi spá uppfærð.

Fjölgun farþega um Keflavíkurflugvöll hefur verið afar hröð á síðustu árum og hefur það í sumum tilvikum kallað á uppfærða farþegaspá þegar liðið hefur á árið – hvort sem farþegum hefur fjölgað eða fækkað. Í lok mars hætti WOW air, einn stærsti viðskiptavinur Isavia á Keflavíkurflugvelli, starfsemi. Þá var ljóst að gera yrði breytingar á farþegaspá fyrir árið 2019. Því til viðbótar hefur verið nokkur óvissa vegna stöðu Boeing MAX flugvéla Icelandair. Í spá fyrir árið 2019, sem birt var í janúar, var gert ráð fyrir að 8,9 milljón farþegar færu um Keflavíkurflugvöll í ár.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024