Fréttir

Álfurinn teppaleggur Reykjanesið
Fimmtudagur 5. maí 2022 kl. 11:56

Álfurinn teppaleggur Reykjanesið

Kraftmikið sölufólk verður á ferðinni í verslunum og á bensínstöðvum víða um Reykjanes næstu daga til að selja Álfinn frá SÁÁ. Í Reykjanesbæ heldur Glímudeild Ungmennafélags Njarðvíkur utan um Álfasöluna, í Grindavík er það þriðji flokkur fótbolta Ungmennafélags Grindavíkur, Skátafélagið Heiðbúar sinnir Garði, Sandgerði og Höfnum og í Vogum er það Ungmennafélagið Þróttur. Svo skyldi ekki gleyma kjarnakonunni Katrínu Rut Jóhannsdóttur sem stýrir sölunni á Ásbrú. 

Þetta er í 34. skipti sem SÁÁ stendur að Álfasölunni, sem er ein mikilvægasta fjáröflunarleið samtakanna.  

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Að þessu sinni er Álfurinn í gervi töframanns, sem er afar viðeigandi í ljósi þess að Álfasala SÁÁ hefur stuðlað að töfrum í lífi þeirra þúsunda sem hafa komið í meðferð hjá samtökunum gegnum árin. Að ekki sé talað um töfrana fyrir aðstandendur, vini, vinnuveitendur og þjóðfélagið allt. 

Tekjurnar af Álfasölunni hafa einkum verið nýttar til að byggja upp rými og þjónustu fyrir ungt fólk og aðstandendur alkóhólista. 

Sú mikla uppbygging sem SÁÁ hefur staðið fyrir í tæp 45 ár byggir alfarið á fjárhagslegum stuðningi landsmanna, sem hafa ávallt tekið vel í fjáraflanir samtakanna, ekki síst Álfinn. 

Í heildina munu um 800 manns bjóða Töfra-Álfinn til sölu næstu daga á fjölförnum stöðum um land allt. 

Willum Þór Þórsson ráðherra heilbrigðismála kom í heimsókn til SÁÁ til að kaupa fyrsta Álfinn. Hér er hann með Önnu Hildi Guðmundsdóttur formanni SÁÁ og Þráni Farestveit varaformanni