Fréttir

Aldrei fleiri stundað nám í Keili en nú
Laugardagur 16. nóvember 2019 kl. 09:58

Aldrei fleiri stundað nám í Keili en nú

Í nóvember 2019 voru samtals um eitt þúsund nemendur skráðir í nám og ýmiskonar námskeið á vegum Keilis og hafa aldrei fleiri aðilar lagt stund á nám við skólann en nú. Fjöldi nemenda hefur aukist um 50% frá því í febrúar á þessu ári en munar þar mestu um nýnema í Menntaskólanum á Ásbrú sem hófu nám á stúdentsbraut með áherslu á tölvuleikjagerð í ágúst og atvinnuflugnema sem lögðu áður stund á nám í Flugskóla Íslands, en hann sameinaðist Flugakademíu Keilis fyrr á árinu. Þá tók Keilir einnig yfir umsjón með námskeiði til inntökuprófs í læknisfræði en þau hafa verið haldin undanfarin ár við góðan orðstír framhaldsskólanema af öllu landinu.

Tæplega þrjúhundruð nemendur í Háskólabrú

Eftir sem áður eru stærstu námsbrautirnar Háskólabrú og atvinnuflugnámið. Á haustönn 2019 leggja rétt tæplega þrjú hundruð einstaklingar stund á nám í Háskólabrú, bæði í fjarnámi og staðnámi. Frumgreinanámið sem gildir til inntöku í allar deildir Háskóla Íslands, ásamt fjölda háskóla bæði hérlendis og erlendis, hefur frá upphafi verið ein eftirsóknarverðasta deild Keilis og hafa nú um tvö þúsund einstaklingar lokið náminu. Háskólabrú í fjarnámi hefst næst í janúar 2020 og er aukin ásókn í námið þriðja árið í röð.

Einn öflugasti flugskóli á Norðurlöndum

Flugakademía Keilis - Flugskóli Íslands er orðinn einn öflugasti flugskóli á Norðurlöndum með rúmlega þrjúhundruð nemendur í atvinnuflugnámi og yfir tuttugu kennsluvélar. Með auknum umsvifum er skólinn með starfsstöðvar bæði við alþjóðaflugvöllinn í Keflavík og á Reykjavíkurflugvelli. Þá geta nemendur sótt bóklegt nám annað hvort í aðalbyggingu Keilis á Ásbrú eða í húsnæði skólans í Hafnarfirði. Um það bil 90% nemenda okkar sem hafa lokið þessu námi hafa fundið starf innan eins árs frá útskrift. Mikill skortur er á flugmönnum á heimsvísu og er búist við að það muni þurfa um 800.000 flugmenn á heimsvísu til að mæta örum vexti.

Íslenskir nemendur í meirihluta

Lang flestir nemendur Keilis eru íslenskir eða um 94% en um 60 manns koma erlendis frá, flestir frá Danmörku, Póllandi, Svíþjóð og Kanada. Þá eru rúm 60% nemenda búsettir á höfuðborgarsvæðinu og tæp 20% á Suðurnesjum. Kynjahlutfall nemenda í Keili er hnífjafnt. Munar þar mestu um aukinn áhuga kvenna á atvinnuflugnámi og eru þær nú ríflega fjórðungur flugnema í Flugakademíunni. Þá er jafnt kynjahlutfall meðal forstöðumanna deilda skólans sem og í stjórn Keilis.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024