Fréttir

7,6 milljarða tap á rekstri Isavia fyrstu sex mánuðina
Það hefur verið fámennt í flugstöðinni undanfarnar vikur og stóran hluta þessa árs. Það hefur komið fram í rekstri Isavia. VF-mynd/pket.
Miðvikudagur 30. september 2020 kl. 16:07

7,6 milljarða tap á rekstri Isavia fyrstu sex mánuðina

Rekstrarafkoma af samstæðu Isavia fyrir fjármagnsliði og skatta (EBIT) á fyrri helmingi ársins 2020 var neikvæð um 5,3 milljarða króna samanborið við neikvæða rekstrarafkomu upp á 942 milljónir króna árið á undan.

Áhrif kórónuveirunnar voru veruleg á rekstur félagsins á fyrri helmingi ársins og nam samdráttur í tekjum frá sama tímabili í fyrra um 9,6 milljörðum króna eða 53%. Ef horft er eingöngu til annars ársfjórðungs nam tekjusamdráttur milli ára um 77% fyrir samstæðu Isavia en 97% ef horft er til reksturs móðurfélagsins sem sinnir rekstri Keflavíkurflugvallar. Félagið hefur gripið til verulegra hagræðingaaðgerða til að mæta tekjusamdrættinum en áhrifa þeirra mun gæta á síðari hluta ársins. Engu að síður lækkaði rekstrarkostnaður um 12,4% milli fyrri helmings árs 2019 og 2020 sem má að stærstum hluta rekja til aðgerða sem félagið greip til í kjölfar falls Wow air í lok fyrsta ársfjórðungs á síðasta ári og áhrifa af kyrrsetningu Boeing 737-MAX flugvéla Icelandair. 

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Heildarafkoma tímabilsins var neikvæð um 7,6 milljarða króna samanborið við neikvæða afkomu um 2,5 milljarða króna fyrir sama tímabil í fyrra en inn í þeirri afkomu var niðurfærsla upp á um 1,9 milljarð króna vegna falls Wow air.

 „Áhrif kórónuveirunnar á rekstur flugvalla og flugleiðsöguþjónustu hafa verið veruleg og ber afkoman hjá samstæðu Isavia þess merki,“ segir Sveinbjörn Indriðason, forstjóri Isavia. „Við höfum gripið til umfangsmikilla aðgerða til að mæta þessum áhrifum og höfum m.a. því miður neyðst til þess að segja upp fjölda starfsmanna hjá móðurfélaginu og í Fríhöfninni ásamt því að skerða starfshlutföll starfsmanna hjá samstæðunni. Við búum okkur undir að flugumferð fari jafnvel ekki af stað á ný fyrr en í lok fyrsta ársfjórðungs næsta árs. Þannig lítur þetta út í dag. Afkomuspá okkar gerir nú ráð fyrir að heildarafkoma samstæðu Isavia verði neikvæð um 13-14 milljarða króna á árinu 2020 og að áhrif kórónuveirunnar geti því numið um 15-16 milljörðum króna á heildarafkomuna. Aftur á móti er sjóðstaða félagsins sterk og við ráðum við að vera tekjulaus á Keflavíkurflugvelli fram á næsta vor án þess að sækja viðbótar fjármögnun. Við gerum þó ráð fyrir í okkar áætlunum að sækja nýtt fjármagn inn í félagið til að geta viðhaldið okkar umsvifum til næstu ára.“

Þrátt fyrir gríðarmikil áhrif kórónuveirunnar á rekstur Isavia og ferðaþjónustunnar í heild þá telur félagið að mikil tækifæri séu til staðar fyrir Ísland og innlenda ferðaþjónustu þegar flug hefst á ný: „Við sáum í sumar að það er mjög  mikill áhugi hjá ferðamönnum að heimsækja Ísland og þá kom það okkur í rauninni á óvart hversu hratt flugfélög fjölguðu ferðum þegar byrjað var að skima fyrir veirunni á Keflavíkurflugvelli í júní,“ segir Sveinbjörn. „Ferðamenn munu að okkar mati sækja heim  áfangastaði sem bjóða upp víðáttu og hreinleika, þannig að við teljum að Ísland verði eftirsóttur áfangastaður þegar flug hefst á ný. Við sjáum líka mikil tækifæri til að styrkja samkeppnisstöðu Keflavíkurflugvallar sem tengiflugvallar milli Evrópu og Norður-Ameríku. Þá má ekki gleyma því að það flugfélag sem hefur nýtt flugvöllinn sem tengiflugvöll tryggði sér nýverið mikilvæga fjármögnun. Þó að staðan núna sé afar krefjandi megum við ekki missa sjónar á þeim miklu möguleikum sem við höfum til framtíðar,” segir Sveinbjörn.