Fréttir

5,7 milljónir farþega um Keflavíkurflugvöll á þessu ári
Miðvikudagur 11. maí 2022 kl. 09:30

5,7 milljónir farþega um Keflavíkurflugvöll á þessu ári

Samkvæmt farþegaspá Isavia er gert ráð fyrir að farþegar sem fara um Keflavíkurflugvöll 2022 verði rétt rúmlega 5,7 milljónir, sem er um 79% af þeim fjölda sem fór um völlinn árið 2019, þ.e. fyrir Covid-19 heimsfaraldurinn, og 162% fleiri farþegar en fóru um völlinn í fyrra. Gert er ráð fyrir að endurheimtin í fjölda farþega yfir hásumarið og fram á haust verði 93% í júlí, 91% í ágúst og 98% í september. Þá verði farþegar sem fara um Keflavíkurflugvöll í októbermánuði í ár nærri 700 fleiri en sama mánuð 2019. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Isavia.

Gert er ráð fyrir að fjöldi skiptifarþega nærri tvöfaldist nú í maí og aukist jafnt og þétt fram á haust. Tvö félög bjóða nú upp á tengiflug milli Evrópu og Norður-Ameríku um Keflavíkurflugvöll. Auk Icelandair hóf Play flug vestur um haf í apríl. Farþegaspáin gerir ráð fyrir að tengifarþegar verði tæplega 1,5 milljónir fyrir allt árið 2022 en þeir voru rétt rúmar 2 milljónir 2019 og 350 þúsund í fyrra.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

„Isavia hefur ekki gefið út farþegaspá frá því fyrir Covid-19 vegna þeirrar miklu óvissu sem ríkt hefur,“ segir Grétar Már Garðarsson, forstöðumaður flugfélaga og leiðaþróunar hjá Isavia. „Endurheimtin er hraðari en við bjuggumst við fyrr á þessu ári,“ segir Grétar. „Samkvæmt farþegaforsendum sem við gerðum í byrjun febrúar var útlit fyrir að heildarfjöldi farþega um Keflavíkurflugvöll yrði tæpar 4,6 milljónir. Nú hefur sú tala hækkað um ríflega eina milljón.“

Flugfélögin sem fljúga til og frá Keflavíkurflugvelli í sumar verða 24 talsins samanborið við 25 flugfélög sumarið 2019. Þá eru áfangastaðirnir nú í sumar 75 en voru 80 sumarmánuðina 2019. Grétar segir að Isavia geri ráð fyrir að fjöldi ferðamanna á Íslandi í ár verið á bilinu 1,4-1,5 milljónir. Fyrri forsendur gerðu ráð fyrir 1,2 milljón farþegum.

„Heimurinn er að opnast eftir heimsfaraldurinn og ferðaþjónustan að vakna eftir erfitt tímabil,“ segir Grétar. „Við hjá Isavia erum bjartsýn fyrir sumarið og á framtíðina. Árið 2022 endurheimtum við ferðagleðina. Þetta verður líka eitt mesta framkvæmdaár í sögu Keflavíkurflugvallar. Við erum að stækka og bæta flugstöðina til að geta enn betur tekið á móti ferðafólki til framtíðar.“