„Skerðing á þjónustu en enginn sparnaður“
Framkvæma dýptarmælingar í Sandgerðishöfn en deilt um helgarlokanir
Bæjarstjórn Suðurnesjabæjar hefur samþykkt að ráðast í dýptarmælingar í Sandgerðishöfn til að styrkja umsóknir um ríkisstyrki til hafnarframkvæmda. Þótt eining hafi ríkt um mælingarnar á fundi bæjarstjórnar gaus upp mikill ágreiningur um þá ákvörðun að loka höfninni um helgar út ágústmánuð.
Mál dýptarmælinganna rataði inn á borð bæjarstjórnar með skömmum fyrirvara. Árni Gísli Árnason, starfandi bæjarstjóri og hafnarstjóri, útskýrði að til stæði að nýta ferð mælingaskips á vegum Vegagerðarinnar sem er á svæðinu vegna endurnýjunar á vitaljósum í Sandgerði. Hugmyndin er að nýta ferðina og láta mæla dýpið í höfninni í leiðinni.
Þar sem mælingarnar krefjast slétts sjávar verður framkvæmdin líklega ekki fyrr en eftir verslunarmannahelgi. Þótt um óáætlaðan aukakostnað sé að ræða verður honum mætt með því að hækka áætlaðar tekjur hafnarinnar, enda hefur aflaverð verið gott og tekjurnar þegar yfir áætlun. Bæjarstjórn samþykkti viðaukann samhljóða, en Árni Gísli benti á að dýptarmælingarnar muni nýtast sem lykilgögn þegar sótt verður um styrki í Hafnabótasjóð ríkisins vegna framtíðarviðhalds.
Helgarlokanir gagnrýndar: „Eingöngu verið að gefa mönnum frí“
Ekki ríkti jafnmikil sátt um rekstur hafnarinnar að öðru leyti. Magnús Sigfús Magnússon, bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins (B-lista), lýsti yfir mikilli undrun og gagnrýni á að tilkynning hefði birst á Facebook um að Sandgerðishöfn yrði lokuð um helgar út ágúst. Hann setti spurningarmerki við stjórnsýsluna á bak við ákvörðunina og benti á að hafnarráð hefði fundað viku áður án þess að málið væri nefnt þar.
Magnús gaf lítið fyrir þau rök að lokunin væri til þess að spara peninga:
„Rökin sem ég heyrði voru að þetta sparaði töluverðan pening fyrir höfnina af því að þyrfti ekki að borga fjóra tíma í næturvinnu. En starfskjörin á höfninni eru með öðrum hætti. Þetta eru menn í fastri vaktavinnu og þar af leiðandi á föstum mánaðarlaunum, og það er ekkert verið að gera annað en að gefa mönnunum frí. Það ríkir enginn sparnaður í launagreiðslum, þannig að þetta er eingöngu skerðing á þjónustu.“
Magnús benti á að ef starfsmenn þurfi að svara útkallssíma séu þeir komnir á bakvakt og fái greitt fyrir það, og því spyrji hann hvar hinn raunverulegi sparnaður liggi. Hann tók fram að breytingar á vaktafyrirkomulagi þurfi jafnan að kynna með mánaðarfyrirvara og að svona ákvarðanir eigi heima hjá stjórnsýslunni en ekki hjá einstökum forstöðumönnum.
Hafnarstjóri vissi ekki af lokuninni fyrir fram
Árni Gísli Árnason, starfandi hafnarstjóri, viðurkenndi hreinskilnislega á fundinum að honum hefði ekki verið kunnugt um lokunina fyrir fram. Hann sagðist þó skilja ákvörðun viðkomandi stjórnanda á höfninni út frá því að rætt hefði verið við alla helstu útgerðaraðila á svæðinu og ljóst væri að engin löndun væri fyrirhuguð um helgar.
Sú ákvörðun hefði því verið tekin til að ná fram hagræðingu og létta á mönnun yfir sumarleyfistímabilið þegar fáir starfsmenn eru í húsi. Árni Gísli tók þó undir gagnrýni Magnúsar um að kynningin hefði mátt vera betri og sagði að tryggja þyrfti að svona mál yrðu tekin fyrir með öðrum hætti fyrir næsta sumar.







