Fréttir

Tvær verslanir og fjórir veitingastaðir bætast við flóru FLE
Miðvikudagur 1. október 2014 kl. 16:10

Tvær verslanir og fjórir veitingastaðir bætast við flóru FLE

Vali á rekstraraðilum í veitinga- og verslunarrými í Flugstöð Leifs Eiríkssonar á Keflavíkurflugvelli er lokið.  Fjöldi metnaðarfullra tillagna barst, bæði frá aðilum sem eru nú með rekstur í flugstöðinni og öðrum. Sex verslanir og einn veitingastaður voru valin til að halda áfram rekstri en við bætast tvær nýjar verslanir og fjórir veitingastaðir.  Frá þessu var greint á blaðamannafundi Isavia í dag.

Veitingarekstur verður í höndum Joe Ísland, sem mun opna Joe and the Juice samloku- og safabar, og Nord í samstarfi við Lagardère Services, sem munu halda áfram rekstri veitingarstaðarins Nord auk þess að opna sjálfsafgreiðsluveitingastað, Segafredo kaffihús og bar með íslensku þema.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Minni breytingar verða á verslunarrekstri í flugstöðinni. Verslanirnar 66°N, Bláa lónið, Elko, Eymundsson, Optical Studio og Rammagerðin munu allar halda áfram starfsemi. Við bætast verslun með tískufatnað þar sem boðið verður upp á þekkt erlend vörumerki ásamt íslenskri hönnun, rekin af Airport Retail Group, og sælkeraverslun á vegum Nord og Lagardère Services.

Björn Óli Hauksson, forstjóri Isavia, segir að mikil ánægja ríki innan fyrirtækisins með niðurstöðu valferlisins. „Markmiðið var að auka arðsemi af verslun og þjónustu, opna markaðinn og stuðla að aukinni samkeppni með því að nota eins opið og gagnsætt ferli og kostur er til að velja rekstraraðila. Þá lögðum við áherslu á að tenging við Ísland yrði sýnileg í vöruúrvali og veitingum. Okkar mat er að við höfum náð þessum markmiðum og gott betur. Við gerum ráð fyrir að tekjur okkar af þessum hluta verslunarsvæðisins aukist um 60%. Þessar nauðsynlegu framkvæmdir munu því borga sig upp með tekjuaukningunni á um tveimur og hálfu ári og við öflum auk þess tekna fyrir framkvæmdir sem við þurfum að ráðast í í fyrirsjáanlegri framtíð.“

Meirihluti fyrirtækja sem urðu fyrir valinu eru íslensk

Samtals barst 71 tillaga og voru margar þeirra mjög vel unnar og metnaðarfullar. Eftir ítarlegt valferli þar sem tekið var tillit til fjölda þátta urðu 13 tillögur fyrir valinu. Meirihluti þeirra fyrirtækja sem urðu fyrir valinu eru íslensk. Auk þeirra eru tvö alþjóðleg fyrirtæki með mikla reynslu af rekstri á alþjóðlegum flugvöllum.

Með þeim breytingum sem framundan eru í flugstöðinni verður verslunar- og veitingarými stækkað og veitingastöðum fjölgað þannig að flugstöðin mun geta þjónað þeim aukna fjölda farþega sem búist er við á næstu árum. Það hefur í för með sér verulega fjölgun starfa í flugstöðinni og auknar tekjur af verslunarsvæðinu sem styður við mikilvægar fjárfestingar sem framundan eru á flugvellinum. Framkvæmdir hefjast í nóvember og gert er ráð fyrir að þeim ljúki í vor.