Fréttir

Sveitarfélögin funda um helgina
Hjúkrunarheimili í Reykjanesbæ. Málefni aldraðra verða fyrirferðarmikil á fundi SSS um helgina.
Föstudagur 2. október 2015 kl. 10:16

Sveitarfélögin funda um helgina

Aðalfundur Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum verður haldinn í dag og á morgun, laugardag. Stærsta mál fundarins að þessu sinni er málefni eldri borgara og þjónusta við þá. Fundurinn fer fram í Fjölbrautaskóla Suðurnesja.

Á næstu árum má gera ráð fyrir að hlutfallslega verði mesta fjölgun í þessum aldurshóp, þ.e. 60 ára og eldri. Auk erinda frá fagfólki munu vinnuhópar starfa á fundinum og með því móti leggja drög að sameiginlegri stefnumótun málaflokksins fyrir allt svæðið.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024