Fréttir

  • Suðurnesjakonur meðal áhrifamestu á landinu
    Margrét Sanders, framkvæmdastjóri Deloitte og formaður Samtaka verslunar og þjónustu, er ein kvennanna.
  • Suðurnesjakonur meðal áhrifamestu á landinu
    Herdís Dröfn Fjeldsted, forstjóri Framtakasjóðsins, stjórnarformaður Icelandic Group og stjórnarmaður í Icelandair Group.
Fimmtudagur 10. júlí 2014 kl. 10:30

Suðurnesjakonur meðal áhrifamestu á landinu

- í atvinnu- og stjórnmálalífi, samkvæmt lista tímaritsins Frjálsrar verslunar

Átta konur af Suðurnesjum eru meðal 100 áhrifamestu í viðskipta- og stjórnmálalífi á Íslandi árið 2014. Viðskiptatímaritið Frjáls Verslun hefur tekið saman listann. Í inngangi eru færð rök fyrir valinu og það sagt huglægt en að áhrif í krafti hlutafjáreignar í fyrirtækjum vegi þungt í úttektinni, auk vilja til að hafa áhrif.

Víkurfréttir hafa á undanförnum mánuðum tekið viðtöl við nokkrar kvennanna og á listanum fylgja með slóðir á þau viðtöl. Konurnar eru þessar:

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Aðalheiður Héðinsdóttir, eigandi Kaffitárs.


Elínrós Líndal, frumkvöðull og framkvæmdastjóri Ellu.


Erla Ósk Pétursdóttir, framkvæmdastjóri sjávarútvegsfyrirtækisins Codlands í Grindavík.

Margrét Sanders, framkvæmdastjóri Deloitte og formaður Samtaka verslunar og þjónustu.


Ragnheiður Elín Árnadóttir, efnahags- og viðskiptaráðherra.


Sigríður Margrét Oddsdóttir, framkvæmdastjóri Já, stjórnarmaður í Samtökum atvinnulífsins og Samtökum verlunar og þjónustu. (Mynd/ja.is)


Una Steinsdóttir, framkvæmdastjóri viðskiptabankasviðs hjá Íslandsbanka. (Mynd/Íslandsbanki)