Fréttir

Söfnuðu 800 þúsund krónum fyrir langveik og fötluð börn í Reykjanesbæ
Miðvikudagur 27. júní 2018 kl. 09:34

Söfnuðu 800 þúsund krónum fyrir langveik og fötluð börn í Reykjanesbæ

— „Frá barni til barns“

Píanó-, harmoniku- og hljómborðsnemendur Tónlistarskóla Reykjanesbæjar, ásamt kennurum sínum, efndu nú á vordögum til tónlistarverkefnis sem ber heitið „Frá barni til barns“ og hleyptu því af stokkunum laugardaginn 14. apríl s.l.  Tónlistarverkefnið „Frá barni til barns“ er söfnun til styrktar langveikum/fötluðum börnum í Reykjanesbæ. 
 
Upphafsdaginn var efnt til sérstakrar dagskrár í Tónlistarskóla Reykjanesbæjar þar sem haldin var tónleikaröð í tónleikasalnum Bergi. Auk þess var efnt til listmarkaðar þar sem listamenn á sviði myndlistar, ritlistar, tónlistar, ljósmyndunar og ýmis konar handverks gáfu verk sín. Þar að auki var starfrækt kaffihús við listmarkaðinn og nýttu nokkrir píanó- og harmonikunemendur tækifærið og léku fyrir gesti kaffihússins. 
 
„Frá barni til barns“ heppnaðist í alla staði mjög vel og það var mikill fjöldi fólks sem lagði leið sína í Tónlistarskólann, þann 14. apríl, til að njóta tónlistarflutnings nemenda og góðra veitinga og all nokkuð af listaverkum seldust. 
 
Starfsmannafélag Brunavarna Suðurnesja gaf þennan dag 100.000 kr. til styrktar málefninu.

Tónlistarskólinn og aðstandendur „Frá barni til barns“ þakka innilega  þann stórhug. 
 
Verkefnið „Frá barni til barns“stóð formlega yfir til 14. maí s.l. en styrktarreikningur verkefnisins var opinn fram í júní.  
 
Afrakstur verkefnisins „Frá barni til barns“, alls kr. 800.000, var afhentur Velferðarsviði Reykjanesbæjar þann 21. júní s.l. til varðveislu og nýtingar í þágu langveikra/fatlaðra barna í Reykjanesbæ og fór afhendingin fram í Tónlistarskóla Reykjanesbæjar.
 
 
Á myndinni eru frá vinstri: Bjargey Þrúður Ingólfsdóttir deildarstjóri hljómborðsdeildar, Sigríður Daníelsdóttir forstöðumaður fjölskyldumála hjá Velferðarsviði Reykjanesbæjar, Sigurbjörg Diljá Gunnarsdóttir píanónemandi, Jón Garðar Arnarsson píanónemandi, Karen Janine Sturlaugsson aðstoðarskólastjóri og Haraldur Árni Haraldsson skólastjóri. VF-mynd: Hilmar Bragi
 
Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024