Pistlar

Ein af perlum Reykjanesskagans
Sunnudagur 7. nóvember 2021 kl. 07:47

Ein af perlum Reykjanesskagans

Staðarborg er falleg hringlaga fjárborg hlaðin úr grjóti og staðsett um tvo, þrjá kílómetra frá Kálfatjörn á Vatnsleysuströnd. Vegghæðin er um tveir metrar og þvermál að innan um átta metrar. Ummál hringsins að utanverðu er um 35 metrar. Gólfið inni í borginni er grasi gróið og rennislétt. Ekki er vitað hvenær borgin var hlaðin en menn telja hana nokkur hundruð ára gamla. Munnmæli herma að maður að nafni Guðmundur hafi hlaðið borgina fyrir Kálfatjarnarprest. 

Guðmundur vandaði vel til verka, safnaði grjóti saman úr nágrenninu, bar það saman í raðir og gat einnig valið þá hleðslusteina sem saman áttu. Ætlun hans var að hlaða borgina í topp – en er hann var nýbyrjaður að draga veggina saman að ofanverðu kom húsbóndi hans í heimsókn. Sá hann þá strax í hendi sér að fullhlaðin yrði borgin hærri en kirkjuturninn á Kálfatjarnarkirkju og tilkomumeiri í alla staði. Reiddist hann Guðmundi og lagði blátt bann við fyrirætlan hans. Fauk í Guðmund svo hann hljóp frá verkinu eins og það var og hefur ekki verið hreyft við borginni síðan. 

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Staðarborg var friðlýst sem forminjar árið 1951. Óhætt er að segja að Staðarborg sé ein af perlum Reykjanesskagans.