Mannlíf

Ljósin tendruð á jólatré Grindavíkurbæjar á föstudag
Hilmar Bragi Bárðarson
Hilmar Bragi Bárðarson skrifar
fimmtudaginn 28. nóvember 2019 kl. 09:58

Ljósin tendruð á jólatré Grindavíkurbæjar á föstudag

Kveikt verður á jólatré Grindavíkurbæjar á torginu fyrir framan Íþróttamiðstöðina föstudaginn 29. nóvember kl. 17:30. Nemendur úr Tónlistarskóla Grindavíkur leika jólalög í Gjánni og jólasveinarnir kíkja í heimsókn.

Unglingadeildin Hafbjörg mun bjóða gestum upp á heitt súkkulaði og piparkökur.

Allir íbúar Grindavíkur og gestir þeirra eru hjartanlega velkomnir!

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024