Flugger
Flugger

Mannlíf

Guðjón Steinn ásamt kvartett leikur í Bergi
Jóhann Páll Kristbjörnsson
Jóhann Páll Kristbjörnsson skrifar
miðvikudaginn 29. maí 2024 kl. 08:25

Guðjón Steinn ásamt kvartett leikur í Bergi

Guðjón Steinn Skúlason, ásamt kvartett sínum, kemur fram í Bergi, Hljómahöll, að kvöldi 29. maí, þar sem flutt verður nýsamin tónlist Guðjóns.

Tónsmíðarnar á efnisskrá kvöldsins eru fæstar eldri en eins árs gamlar og litast margar þeirra af dvöl hans í New York-borg í bland við áhrif íslenskrar myndlistar og náttúru. Kvartettinn skipa, auk Guðjóns, Eyþór Gunnarsson á píanó, Nico Moreaux á kontrabassa og Einar Scheving á trommur. Tónleikarnir eru hluti Tónleikaraðar Ellýjar og hefjast klukkan 20:00. Enginn aðgangseyrir og öll velkomin.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024