Mannlíf

Fjölmenni var á opnunardegi sýningar Gyrðis Elíassonar
Þriðjudagur 9. apríl 2024 kl. 16:03

Fjölmenni var á opnunardegi sýningar Gyrðis Elíassonar

Fjölmennt var á opnunardegi sýningar Gyrðis Elíassonar Undir stækkunargleri en sýningin var opnuð fyrir almenning þann 6.apríl. Á sýningunni eru um 1.200 myndir sem Gyrðir hefur búið til á undanförnum árum en um er að ræða sölusýningu þar sem verðinu er stillt í hóf. Smámyndir Gyrðis hafa á undanförnum árum prýtt kápur bóka hans, meðal annars metsölubækurnar Dulstirni / Meðan glerið sefur og smáprósasöfnin Þöglu myndirnar / Pensilskrift. 

Gyrðir verður áfram með opið næstu helgar frá kl.13.00 - 17.00 þann  13. og 14. apríl og 20. og 21. apríl. 

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Sjón er sögu ríkari og á vef Suðurnesjabæjar eru allir sem áhuga hafa að kíkja við á Sunnubraut 4, efri hæð. 

Einnig er hægt að hafa samband við listamanninn í s. 618-3813 til að skoða sýninguna utan opnunartíma.