Mannlíf

Ætlar að mæta í ræktina alla daga vikunnar
Thelma Hrund Hermannsdóttir
Thelma Hrund Hermannsdóttir skrifar
mánudaginn 2. janúar 2023 kl. 10:18

Ætlar að mæta í ræktina alla daga vikunnar

Stærsti draumur Jóns Unnars er að verða atvinnumaður í fótbolta. Hans markmið fyrir árið 2023 er að mæta á hverjum degi í ræktina. Eftir grunnskóla stefnir hann að því að verða bifvélavirki. Jón Unnar er ungmenni vikunnar.

Nafn: Jón Unnar

Aldur: 14 ára

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Skóli: Stapaskóli

Bekkur: 9. bekkur

Áhugamál: Fótbolti, ræktin, vélsleðar og buggy-bílar.

Hvert er skemmtilegasta fagið?
Náttúrufræði.

Hver í skólanum þínum er líklegur til að verða frægur og hvers vegna? Viktor Breki, hann verður frægur út af því að hann er svo klár og hann mun verða moldríkur.

Skemmtilegasta saga úr skólanum:
Þegar ég og félagar mínir þurftum að horfa á vegg í heilan klukkutíma hjá skólastjóranum.

Hver er fyndnastur í skólanum?
Isak Calsdaldo er fyndnastur.

Hvað langar þig að gera eftir grunnskóla?
Mig langar til að verða bifvélavirki.

Ef þú ættir að lýsa sjálfum þér í einu orði hvaða orð væri það? Hugrakkur.

Ef þú gætir valið þér einn ofurkraft til að vera með restina af ævinni, hvað væri það? Ég myndi vilja vera ósýnilegur.

Hvaða mánuður er besti mánuðurinn og af hverju? Besti mánuðurinn er desember, út af því að þá eru jól.

Hvað stendur upp úr árið 2022 hjá þér?
Klárlega Gothia Cup.

Hvað ætlar þú og fjölskylda þín að gera um áramótin? Horfa a áramótaskaupið og sprengja saman.

Ertu með einhver nýársheit eða markmið fyrir næsta ár? Að fara í ræktina alla daga vikurnar.

Hver er þinn stærsti draumur? Minn stærsti draumur er að verða atvinnumaður í fótbolta.