Public deli
Public deli

Fréttir

Nýr Baldvin Njálsson GK 400 tekur á sig mynd
Brúin komin á skipið við bryggju hjá skipasmíðastöðinni. Þarna vantar enn tvo glugga á stýrishúsið og vörumerki BN ekki fullmálað á skipsskrokkinn.
Laugardagur 10. apríl 2021 kl. 06:54

Nýr Baldvin Njálsson GK 400 tekur á sig mynd

Smíði á nýjum Baldvini Njálssyni GK fyrir Nesfisk í Garði gengur vel hjá skipasmíðastöðinni Armon í Vigo á Spáni. Skrokkur skipsins var sjósettur í nýliðnum marsmánuði. Þá var brúin sett á skipið en á meðfylgjandi myndum vantar ennþá tvo glugga í brúna. Vænst er til að skipið verði komið til Íslands fullbúið og tilbúið til veiða í haust. Frystitogarinn Baldvin Njálsson GK 400 verður eitt af glæsilegri skipum í íslenska fiskiskipaflotanum.

Baldvin Njálsson GK verður rúmlega 66 metra langur og leysir af hólmi eldra skip með sama nafni sem er að koma til ára sinna og var smíðað í sömu skipasmíðastöð árið 1991 fyrir norskt félag. Nýja skipið verður fimmtán metrar á breidd og með 3.000 kW Wärtsilä aðalvél. Skrúfan verður fimm metrar í ummál og verður nýr Baldvin Njálsson GK í hópi sparneytnustu skipa í þessum flokki.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Séð fram eftir skipinu. Þarna vantar þriðja spilið.

Fjallað var um skipið í Fiskifréttum síðasta haust. Þar sagði að um borð í skipinu verða flök og hausar fryst. Í því verður vöruhótel með þjarka sem tegundar- og stærðarflokkar og beinir afurðum að sjálfvirkum pökkunarbúnaði. Brettastaflari staflar pökkuðum afurðum tilbúnum til löndunar og útflutnings. Á millidekkinu verður flökunarvél og sjálfvirkur frystibúnaður. Lestin er á tveimur hæðum og samtals er rúmmál hennar 1.600 rúmmetrar.

Hér er  séð ofan í vélarúmi og þarna er aðalvél, skrúfugír og rafall komið ofan í á sinn stað.

Smíði skipsins hefur gengið vel en kórónuveirufaraldurinn hefur þó tafið vinnu hjá skipasmíðastöðinni.