Flugger
Flugger

Fréttir

Á meðan land rís við Svartsengi eru líkur á öðru kvikuhlaupi sem gæti endað með eldgosi
Föstudagur 8. desember 2023 kl. 17:11

Á meðan land rís við Svartsengi eru líkur á öðru kvikuhlaupi sem gæti endað með eldgosi

Umbrotahrinunni sem hófst með landrisi við Svartsengi í október er ekki lokið. Land heldur áfram að rísa á sama hraða og síðustu daga. Á meðan að kvika heldur áfram að safnast fyrir við Svartsengi eru líkur á öðru kvikuhlaupi sem gæti endað með eldgosi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands.

Ef til kvikuhlaups kemur er líklegast að kvikan hlaupi aftur inn í kvikuganginn sem myndaðist 10. nóvember. Líklegasti upptakastaður eldgoss er norður af Grindavík í átt að Hagafelli og svæðinu við Sundhjúksgíga.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Ekki er hægt að fullyrða neitt um hvenær næsta kvikuhlaup verður og gæti það hafist með skömmum fyrirvara. Óvissan um tímasetningu er mjög mikil og kvikuhlaup gæti orðið á næstu dögum eða mögulega eftir marga mánuði.

Skjálftavirkni hefur haldist nokkuð jöfn síðustu daga. Stærsti skjálftinn sem mælst hefur síðustu 3 daga er 2,3 að stærð, en flestir skjálftanna eru í kringum 1 að stærð, alls 30 skjálftar.

Nýtt hættumatskort hefur verið gefið út. Kortið sýnir mat á hættum sem eru til staðar og nýjum hættum sem gætu skapast með litlum fyrirvara innan tilgreindra svæða. Eingöngu er lagt mat á hættu innan þessara svæða, en hættur geta leynst utan þeirra. Aðstæður innan og utan svæðanna geta breyst með litlum fyrirvara.

Kortið sýnir mat á hættum sem eru til staðar og nýjum hættum sem gætu skapast með litlum fyrirvara innan tilgreindra svæða. Eingöngu er lagt mat á hættu innan þessara svæða, en hættur geta leynst utan þeirra. Aðstæður innan og utan svæðanna geta breyst með litlum fyrirvara.

Kortið verður uppfært reglulega á vef Veðursofu Íslands og ræðst af því hver þróun virkninnar verður.