Undirbúningstímabil knattspyrnunnar er byrjað
Knattspyrnuvertíðin 2022 er farin af stað og undanfarið hafa nokkur Suðurnesjaliðanna verið að spila leiki í æfingamóti Fótbolta.net og Faxaflóamótinu.
Keflavík, sem leikur í A-deild karla, riðli 1, hefur leikið tvo leiki. Þeir léku gegn Breiðabliki í fyrstu umferð og höfðu Blikar sigur, 5:2. Keflvíkingar unnu hins vegar HK, nágranna Blika, í gær 5:3.
A-deild karla, riðill 1
Breiðablik 6 stig
Leiknir R. 3 stig
Keflavík 3 stig
HK 0 stig
Grindavík, Njarðvík og Þróttur leika í B-deild, Grindavík er í riðli 2 en Njarðvík og Þróttur í riðli 1.
Njarðvík og Þróttur mættust í fyrstu umferð riðils 1 og þar höfðu Njarðvíkingar betur, 4:2. Þeir töpuðu svo fyrir Selfyssingum um síðustu helgi (0:1) á meðan Þróttur gerði markalaust jafntefli við Kórdrengi.
B-deild karla, riðill 1
Kórdrengir 4 stig
Njarðvík 3 stig
Selfoss 3 stig
Þróttur 1 stig
Grindvíkingar hafa leikið einn leik í riðli 2 en þeir mættu KV um helgina. Grindvíkingar lentu undir í fyrri hálfleik en snéru vörn í sókn og höfðu að lokum 4:1 sigur.
B-deild karla, riðill 2
Grindavík 3 stig
KV 3 stig
Víkingur Ó. 0 stig
Afturelding 0 stig
Hér að neðan má sjá myndskeið með mörkum Grindvíkinga úr leik Grindavíkur og KV um síðustu helgi.
Reynismenn hefja leik í C-deild karla, riðli 1, um næstu helgi.
Keflavík hefur leikið tvo leiki í meistaraflokki kvenna sem leikur í A-riðli Faxaflóamótsins. Fyrri leiknum töpuðu þær fyrir Stjörnunni (2:1) og gerðu svo jafntefli við Hauka (1:1).
Staðan í A-riðli
Afturelding 6 stig
Þór/KA 3 stig
Stjarnan 3 stig
Keflavík 1 stig
Haukar 1 stig