Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Íþróttir

Keflavík og Njarðvík hljóta Grasrótarverðlaun KSÍ 2021
Hjördís Baldursdóttir, íþróttastjóri Keflavíkur, og Hámundur Örn Helgason, íþróttastjóri Njarðvíkur, tóku við verðlaununum fyrir hönd félaganna tveggja frá framkvæmdastjóra KSÍ, Klöru Bjartmarz. Mynd: ksi.is
Jóhann Páll Kristbjörnsson
Jóhann Páll Kristbjörnsson skrifar
fimmtudaginn 24. febrúar 2022 kl. 10:24

Keflavík og Njarðvík hljóta Grasrótarverðlaun KSÍ 2021

Knattspyrnusamband Íslands veitti félögunum Keflavík og Njarðvík grasrótarverðlaun KSÍ 2021 fyrir samstarfsverkefnið Íþróttir fyrir börn með mismunandi stuðningsþarfir

Grasrótarverðlaun KSÍ eru veitt sem viðurkenningar fyrir starf að grasrótarmálum í knattspyrnu og eru afhent í aðdraganda ársþings KSÍ ár hvert.

Grasrótarverðlaun KSÍ fyrir árið 2021 í flokknum Grasrótarverkefni ársins hljóta Keflavík og Njarðvík fyrir verkefnið „Íþróttir fyrir börn með mismunandi stuðningsþarfir”. Það voru þau Hjördís Baldursdóttir og Hámundur Örn Helgason sem tóku við verðlaununum fyrir hönd félaganna tveggja frá framkvæmdastjóra KSÍ, Klöru Bjartmarz. Fleiri verðlaun og viðurkenningar ársins verða afhentar næstu daga.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Ungmennafélögin Keflavík og Njarðvík hafa í sameiningu boðið upp á fótboltaæfingar sem ætlaðar eru börnum á aldrinum sex til þrettán ára með sérþarfir. Öllum þátttakendum er mætt á þeirra eigin forsendum og lögð er áhersla á að vera með fjölbreyttar og skemmtilegar æfingar sem eru sniðnar að þörfum þeirra sem æfingarnar sækja.

Víkurfréttir ræddu við íþróttastjóra félaganna um verkefnið á síðasta ári og má sjá það með því að smella á tengilinn hér að neðan.

Frétt af vef KSÍ

Tengdar fréttir