Daníel Leó kominn í pólsku deildina
Grindvíkingurinn Daníel Leó Grétarsson hefur samið við pólska úrvalsdeildarliðið Slask Woclaw sem situr í tíunda sæti pólsku deildarinnar.
Daníel, sem er 26 ára gamall varnarmaður, hefur verið á mála hjá enska liðinu Blackpool í rúmt ár en þar á undan spilaði hann 117 leiki með norska liðinu Aalesund FK. Daníel hefur leikið fimm leiki með A-landsliði Íslands og Arnar Þór Viðarsson, þjálfari liðsins, valdi hann síðast í leikina gegn Armeníu og Liechtenstein í undankeppni HM sem fóru fram á Laugardalsvelli 8. og 11. október síðastliðinn.
Samningur Daníels Leós og Slask Woclaw gildir út júní 2025.
„Daníel er leikmaður sem passar okkur fullkomlega. Við vorum að leita að hreyfanlegum leikmanni sem væri óhræddur við að sækja, án þess að gleyma varnarskyldum sínum. Daníel hefur sýnt það í leikjum með landsliði Íslands og í ensku deildinni að hann er óhræddur við hörkulegan fótbolta, er hraður og fer óhræddur í einvígi. Það var ekki auðvelt að fá þessi skipti í gegn en ég er ánægður að Daníel hafi samþykkt að ganga til liðs við okkur – því hann mun styrkja samkeppnina um stöður í vörninni hjá okkur,“ sagði Dariusz Sztylka, íþróttastjóri Slask Woclaw.
Hér fyrir neðan má sjá fréttina í heild sinni á heimasíðu Slask Woclaw.