820 fótboltastelpur sýndu snilldartilþrif
Það var líf og fjör í Nettóhöllinni um helgina þegar GeoSilica-mótið í knattspyrnu var haldið fyrir stelpur á aldrinum sjö til tólf ára. Eins og gefur að skilja var heilmikill hamagangur í höllinni enda yfir átta hundruð þátttakendur frá nítján félögum auk áhorfenda sem voru komnir til að hvetja sín lið til dáða.
Skipulag mótsins var til fyrirmyndar og gekk snurðulaust fyrir sig, leikmenn meistaraflokka Keflavíkur dæmdu leikina og það sem mestu skipti – allir skemmtu sér vel.
Í tilkynningu frá GeoSilica segir:
Kæru sveitungar,
um liðna helgi var haldið árlegt GeoSilicamót 5., 6. og 7. flokks kvenna í knattspyrnu hér í Reykjanesbæ sjötta árið í röð þann 26.–27. febrúar. Var metþátttaka í ár þar sem yfir um 820 keppendur tóku þátt frá nítján félögum víðs vegar á suðvesturhorninu. Augljóst er að landsmenn taka afléttingu samkomutakmarkana fagnandi, því mikill fjöldi var mættur í Reykjaneshöll til að styðja stelpurnar.
GeoSilicamótið er helsta fjáröflunarleið meistaraflokks kvenna. Var bæði undirbúningur og umsjón mótsins í höndum liðsmanna sem stóðu sig frábærlega. Við erum stolt af stelpunum okkar og teljum að það vera okkar að skylda sem starfandi fyrirtæki á svæðinu að styðja við knattspyrnuiðkun kvenna og vera þannig virkir þátttakendur í heilsueflandi samfélagi. GeoSilica er með þessu móti dyggur stuðningsaðili og bakhjarl meistaraflokks kvenna.
Hvetjum við önnur fyrirtæki sem hafa starfsemi hér á Suðurnesjum að deila sínum stuðningi við heilsueflandi samfélag.
Jóhann Páll Kristbjörnsson, ljósmyndari VF, skellti sér á fótboltamót og smellti af nokkrum myndum eins og sjá má í myndasafni neðar á síðunni.