Karlakórinn
Karlakórinn

Mannlíf

Tilnefningar til íþróttamanns ársins og til hvatningaverðlauna óskast
Vogar.
Föstudagur 15. desember 2023 kl. 13:57

Tilnefningar til íþróttamanns ársins og til hvatningaverðlauna óskast

Sveitarfélagið Vogar óskar eftir tilnefningum á íþróttamanni ársins og til hvatningarverðlauna fyrir árið 2023.

Íþróttamaður ársins verður að vera búsettur í Vogum eða keppa fyrir hönd íþróttafélags í sveitarfélaginu. Tilnefndir íþróttamenn skulu vera orðnir 16 ára eða eldri. Heimilt er að nefna ungling 14-16 ára sem keppir í flokki fullorðinna og hefur náð það góðum árangri að hann teljist á meðal þeirra bestu í sinni íþróttagrein.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Hvatningaverðlaun hlýtur einstaklingur eða einstaklingar sem eru framúrskarandi í ástundun, áhugasemi, hegðun innan vallar sem utan og er góður félagi og fyrirmynd annarra barna og unglinga. Öllum íþróttafélögum og einstaklingum í Vogum er heimilt að tilnefna til hvatningaverðlauna.

Allar tilnefningar skulu vera rökstuddar. Íþróttamaður ársins í Vogum hlýtur við útnefningu, farandbikar til eins árs og bikar til eignar.

Tilnefningar ásamt rökstuðningi sendast á [email protected] eða í lokuðu umslagi á bæjarskrifstofu, stílað á íþrótta- og tómstundafulltrúa, fyrir 20. desember.