Public deli
Public deli

Mannlíf

Már og Iva með yfir 90.000 áhorf á fjórum sólarhringum
Fimmtudagur 7. maí 2020 kl. 23:34

Már og Iva með yfir 90.000 áhorf á fjórum sólarhringum

Már Gunnarsson og Iva Marín Adrichem sameinuðu krafta sína á dögunum og gerðu sína eigin útgáfu af laginu Barn eftir Ragnar Bjarnason við ljóð Steins Steinarr. Lagið er í sumarbúningi og skemmtilegum Reggae-takti.

Laginu fylgir svo fallegt myndband með þeim saman í íslenskri náttúru en myndbandið er tekið upp á Garðskaga og í Sandvík á Reykjanesi. Myndbandið hefur nú verið spilað yfir 90.000 sinnum á fésbókarsíðu Más Gunnarssonar á fjórum sólarhringum.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Það var okkar maður, Hilmar Bragi Bárðarson, sem tók upp og setti saman myndbandið við lagið en þetta er fyrsta staka tónlistarmyndbandið sem hann framleiðir. Hilmar tók einnig upp tónleikana Alive fyrir Má í vetur en þeir voru sýndir um páskana, m.a. á vf.is.