Karlakórinn
Karlakórinn

Íþróttir

Minningarmót Ragnars Margeirssonar
Miðvikudagur 31. janúar 2024 kl. 10:20

Minningarmót Ragnars Margeirssonar

Hið árlega minningarmót um Keflvíkinginn Ragnar Margeirsson, sem lék m.a. með Keflavík, KR og Fram verður haldið í Nettóhöllinni laugardaginn 10. febrúar. Mótið er hefbundið knattspyrnumót eldri drengja með 5 leikmenn í liði á litlum velli.

Skipt verður í riðla eftir aldri þátttökuliða, 30 ára+ og 50 ára+. Hefð hefur skapast fyrir því hjá vinum Ragga Margeirs að styrkja góð málefni tengd knattspyrnu með peningum sem safnast af þáttöku í mótinu. Þetta verður í átjánda sinn sem komið er saman til að minnast Ragnars Margeirssonar sem lést langt fyrir aldur fram. Vinir Ragga Margeirs bjóða öllum að koma við í Nettóhöllinni laugardaginn 10. febrúar og fylgjast með fyrrverandi knattspyrnusnillingum leika listir sínar og eiga góða stund saman.

Mótið hefst um kl. 15:30 og lýkur um kl. 18:00. Leikið verður á fjórum litlum völlum. Leikmannafjöldi: 5 í liði (4 útileikmenn og markvörður) - Aldurstakmark er 30 ár - Þátttökugjald er að lágmarki 25.000 kr. á lið. Staðfestingargjald (10.000 kr. - sem dregst frá þátttökugjaldi) skal greitt eigi síðar en 2. febrúar. Þátttökugjald leggist inn á reikning: 0133-26-005194, kt. 701221-1250.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Þátttökutilkynningar sendist á [email protected].

Á meðan á mótinu stendur verður hægt að kaupa fótboltahæfileika beint af krana í formi bjórs. Að móti loknu verður verðlaunaafhending ásamt því að boðið verður upp á léttar veitingar á heimavelli OldBoys - PADDY’S, Hafnargötu 38. Lokahófið hefst að móti loknu (um kl. 19:00) og lýkur formlega kl. 22 en fjörið heldur áfram fram á rauða nótt.

Þeir sem vilja styrkja málefnið geta gert það með því að leggja inná reikning nr. 0133-26-005194, kt. 701221-1250.

Með fótboltakveðju Vinir Ragga Margeirs.