Flugger
Flugger

Fréttir

Viðskiptavinir vænst þess að heitt vatn fari að streyma á næstu klukkustundum
Mánudagur 12. febrúar 2024 kl. 09:36

Viðskiptavinir vænst þess að heitt vatn fari að streyma á næstu klukkustundum

Nú er viðgerð lokið á hitaveituæðinni frá Svartsengi og heitt vatn farið að steyma í tankana á Fitjum. Starfsmenn HS Veitna undirbúa nú áhleypingu inn á kerfið og geta viðskiptavinir vænst þess að heitt vatn fari að streyma á næstu klukkustundum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá HS Veitum.

Starfsmenn HS Veitna munu vinna þrotlaust að því að koma heitu vatni á allt svæðið á næsta sólahring.

Húseigendur eru hvattir til að vitja eigna sinna meðan hitaveitan kemst í gang.

Frekari upplýsingar munu berast frá HS Veitum og eru viðskiptavinir hvattir til að fylgjast vel með.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

https://www.hsveitur.is/um-okkur/frettir/hitaveitan-i-gang-i-dag/