Public deli
Public deli

Fréttir

Tilnefnd til norrænna jafnréttisverðlauna
Fimmtudagur 5. maí 2022 kl. 07:05

Tilnefnd til norrænna jafnréttisverðlauna

Samkaup hafa verið tilnefnd til Blaze Inclusion Awards, sem eru norræn jafnréttisverðlaun veitt af norsku samtökunum Diversify. Verðlaununum er ætlað að efla einstaklinga og fyrirtæki sem vinna markvisst að aukinni fjölbreytni og jafnrétti innan fyrirtækja sinna.

Tilnefningin er fyrir jafnréttisátakið Jafnrétti fyrir alla – Samkaup alla leið sem unnið er í samvinnu við Samtökin ´78, Þroskahjálp og Mirru fræðslusetur fyrir erlent starfsfólk. Hægt er að taka þátt í kosningunni hér.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Samkaup er tilnefnt í flokki samvirkni (e. synergist) fyrir að bjóða upp á fjölbreyttan vinnustað, þar sem starfsfólk hefur jöfn tækifæri og er metið að verðleikum sínum. Alls eru veitt verðlaun í sex flokkum á Blaze Inclusion Awards og fær aðeins eitt íslenskt fyrirtæki tilnefningu í hverjum flokki.

Jafnréttisátak Samkaupa fór af stað síðasta haust og felur í sér að bæta ferla, halda fræðslufyrirlestra fyrir starfsfólk í verslunum Samkaupa um allt land og bjóða upp á rafræna fræðslu á vegum samtakanna þriggja og vinnufundi með stjórnendum. Sérstök áhersla er lögð á að stjórnendur sýni gott fordæmi fyrir starfsfólk sitt og taki málefni jafnréttis til gagngerrar skoðunar með starfsmannahópnum á hverjum stað. Fyrir átakið hlutu Samkaup í lok síðasta árs tvenn hvatningarverðlaun jafnréttis sem Samtök atvinnulífsins og Háskóli Íslands standa að, annars vegar í flokki fjölmenningar og hins vegar í flokki fötlunar.

Vilja vera besti vinnustaðurinn fyrir starfsfólk í verslun

Samkaup hafa sett sér það markmið að verða besti vinnustaður fyrir starfsfólk í verslun hér á landi. Þá má geta þess að Gunnur Líf Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri mannauðs- og samskiptasviðs Samkaupa, var nýverið valin millistjórnandi ársins hjá Stjórnvísi auk þess sem Samkaup hlaut á dögunum Menntaverðlaun atvinnulífsins.

 Gunnur Líf Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri mannauðssviðs Samkaupa: „Það var óvænt og skemmtilegt að vera tilnefnd. Við hjá Samkaupum brennum fyrir jafnréttismálum og það er mikil viðurkenning fyrir okkar miklu vinnu þegar við hljótum tilnefningu sem þessa. Við lítum þó ekki svo á að þeirri vinnu sé lokið því það þarf statt og stöðugt að gæta að því að staða starfsfólks okkar sé jöfn, óháð kyni, kynhneigð, uppruna o.fl. Við eigum, líkt og flest önnur fyrirtæki, enn nokkuð í land í þeim efnum.“