Flugger
Flugger

Fréttir

Hrynur úr hrauni yfir varnargarðinn og lokað á aðgengi fjölmiðla
Laugardagur 8. júní 2024 kl. 16:51

Hrynur úr hrauni yfir varnargarðinn og lokað á aðgengi fjölmiðla

Dregið hefur úr hraða hraunsins sem fór yfir Grindavíkurveg í morgun nú eftir hádegi. Framendi hraunbreiðunnar hefur náð í um 800 metra fjarlægð frá heitavatnslögnum og færist hægt í áttina að þeim. Má álykta að áhlaupinu sé lokið að sinni en búast má við því að það mjatlist eitthvað áfram. Fylgst verður vel með aðstæðum og ekki er útilokað að annað áhlaup geti átt sér stað á næstu dögum. Þetta kemur fram í tilkynningu Veðurstofu Íslands.

Lokað fyrir aðgengi fjölmiðla

Lokað var fyrir aðgengi fjölmiðla að hraunjaðrinum við Grindavíkurveg um miðjan dag. Ekki ljóst hvort einhver hætta var á ferðum. Ljósmyndara Víkurfrétta var snúið við og gert að yfirgefa svæðið kl. 15:45 án þess að fá að taka nýjar myndir á vettvangi en hraun hafði runnið yfir varnar- og leiðigarð og kveikt í gróðri.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Meðfylgjandi myndir eru frá því í hádeginu í dag. Nýrri myndir getum við ekki boðið lesendum okkar uppá.

Glóandi hraunið rennur yfir Grindavíkurveg í morgun. VF/Hilmar Bragi


Gosið í tíu sólarhringa

Eldgosið á Sundhnúksgígaröðinni heldur áfram og eru nú tíu dagar síðan það hófst. Frá því á þriðjudag, 4. júní, hefur einn gígur verið virkur. Hraun hefur undanfarna daga runnið að mestu til norðvesturs og þykknað við Sýlingarfell ásamt því að renna mjög hægfara norður fyrir Sýlingarfell og til vesturs. Í nótt, aðfaranótt laugardags, tók að auka á hraunstreymið norður fyrir Sýlingarfell til vesturs og í átt að Grindarvíkurvegi.

Hraunið þykkt við varnargarðinn

Í morgun, laugardag, var farið í að loka skarðinu í varnargarðinum við Grindarvíkurveg og um hálf ellefu náði hrauntungan veginum rétt norðan við varnargarðinn. Hraun hefur einnig leitað niður með garðinum og er það mjög þykkt við garðinn og hrynur úr því yfir garðinn á kafla.

Í spilaranum er stutt myndskeið frá því í hádeginu. Aftast í því er röð mynda frá Veðurstofu Íslands úr myndavél sem staðsett er í Þorbirni.

Hraun flæðir yfir Grindavíkurveg 8. júní 2024