Bláa Lónið - 01apíl.
Bláa Lónið - 01apíl.

Fréttir

Féll útbyrðis af skipi við Garðskaga
Laugardagur 3. desember 2022 kl. 19:04

Féll útbyrðis af skipi við Garðskaga

Björgunarsveitir og Landhelgisgæslan leita nú að manni sem féll útbyrðis af fiskiskipi rétt fyrir utan Faxaflóa í dag. Tilkynning um slysið barst rétt fyrir klukkan 17. Vísir.is greinri frá þessu og Guðmundur Birkir Agnarsson sem stýrir aðgerðum Landhelgisgæslunnar staðfestir þetta og segir að aðgerðir séu að hefjast.

Hann segir að tvö aðstoðarskip séu að mæta á vettvang og allur tiltækur floti björgunarsveitanna, tvær þyrlur Landhelgisgæslunnar, auk björgunarbáta frá Vestmannaeyjum. Þá er búið að kalla úr varðskipið Þór.

Public deli
Public deli