Fréttir

Er gjaldeyririnn sem fiskvinnslurnar í Grindavík skapa minna virði en Bláa Lónsins?
Sunnudagur 18. febrúar 2024 kl. 12:19

Er gjaldeyririnn sem fiskvinnslurnar í Grindavík skapa minna virði en Bláa Lónsins?

Af hverju er Grindvíkingum ekki treyst fyrir viðveru á heimilum sínum og fyrirtækjum á meðan túristar ganga lausir á hættusvæðum truflandi vinnandi fólk og eru fyrir stórvirkum flutningatækjum,“ spyr Stefán Kristjánsson, eigandi sjávarútvegsfyrirtækisins Einhamars Seafood í Grindavík í pistli á Facebook.

Stefán er einn margra Grindvíkinga sem hefur gagnrýnt heftan aðgang að Grindavík. Hann segir að fyrirtæki þeirra skapi fjölmörg vel greiðandi störf en nú sé staðan sú að reksturinn sé komin í hættu við að leggjast af.

Hér er pistill Stefáns:

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

„Einhamar Seafood vinnur og flytur út ferskan hágæða fisk þorsk og ýsu í flugi til Ameríku, Bretlands, Frakklands og víðar. Varan okkar er rómuð og eftirsótt, gæði og afhendingaröryggi eru mikil og greitt er hæsta verð, framleiðsluferlið er hátæknilegt, vinnsla og bátar einsog vel smurð vél, falin perla meðal oss.

Veltan er 3.1 milljarður í dýrmætum erlendum gjaldeyri, störfin er 60, laun og tengd gjöld nema 1.160 milljónum og eru ein hæstu meðallaunin í Íslenskum sjávarútvegi.

Árangurinn er starfsfólkinu okkar að þakka sem þrotlaust vinnur langan vinnudag af elju og trúmennsku í síkvikulu starfsumhverfi, heiðurinn er þeirra allan tímann.

Einhamar Seafood er í stórkostlegri hættu að leggjast af, viðskiptasambönd til tuga ára eru í hættu, þekking og reynsla tapast og starfsöryggi fólksins okkar er í miklu uppnámi.

Ég fór í Grindavík í gær ásamt pabba sem er að verða 96 ára. Við fögnuðum heimkomu með vindli og gintussu og fórum síðan á rúntinn. Bærinn okkar var hljóður og nánast mannlaus en því var ekki að heilsa við Bláa Lónið. Þar var ekki þverfótað fyrir rútum og bílum og svo túristum á planinu og á svæðinu í kring. Túristar voru úti í hrauni að skoða nýja hraunið, þeir voru upp á varnargörðunum að taka selfí, Dusterar þveruðu nýgerða vegina við garðana, Dusterar voru í vegköntum og flæktust fyrir stóru búkollunum.

Mér er orða vant.

Er gjaldeyririnn sem fiskvinnslurnar okkar í Grindavík að skapa minna virði en Bláa Lónsins?

Eru störfin okkar í Grindavík minna virði en láglaunastörfin í Bláa Lóninu?

Af hverju er Grindvíkingum ekki treyst fyrir viðveru á heimilum sínum og fyrirtækjum á meðan túristar ganga lausir á hættusvæðum truflandi vinnandi fólk og eru fyrir stórvirkum flutningatækjum?

Rýming tekur 2 mínútur hjá okkur í Einhamar Seafood, hvað tekur rýming langan tíma hjá 500 Kínverjum berum í þessum kísildrullupolli eða sofandi á herbergjum Bláa Lónsins?

Hverskonar ákvarðanir eru þetta eiginlega?

Það er einna líkast að við sé að eiga óþekk börn sem taka ekki sönsum.

Allavegana væri ég búinn að reka ykkur öll.“