Flugger
Flugger

Fréttir

Ekki spara heita vatnið - hraun gæti farið yfir Njarðvíkuræðina
Frá viðgerðum við heitavatnslögnina fyrr í vetur.
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
miðvikudaginn 29. maí 2024 kl. 15:48

Ekki spara heita vatnið - hraun gæti farið yfir Njarðvíkuræðina

Hraun flæðir nú í átt að Njarðvíkuræðinni, heitavatnslögninni, og HS Veitur hvetja íbúa á Suðurnesjum að spara ekki heita vatnið, ekki sé ástæða til þess. „…heldur er mikilvægt að halda uppi góðum þrýstingi og því biðlum við til íbúa að spara ekki heita vatnið. Ástæðan fyrir því er að lögnin er nú grafin í jörðu og með þessu standa vonir til að vel takist þá til að kæla lögnina ef á reynir. Þannig eru þá taldar auknar líkur á að hún haldi ef hraun flæðir yfir hana.“

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024