Flóð á Suðurnesjum, aprílgabb og lífið suður í höfum
Fréttir af náttúrunni náðu augum margra lesenda vf.is á nýliðnu ári. Há sjávarstaða og mikið sjávarflóð rötuðu í nokkrar af mest lesnu fréttum vf.is á síðasta ári. Þá var aprílgabbið vinsælt sprell og lesendur voru forvitnir um lífið suður í höfum en blaðamaður VF tók viðtöl við Suðurnesjafólk á Tenerife
Þota flutt í Sandvík
Það er bara einu sinni á ári sem við segjum ósatt og flytjum falsfréttir. Það er 1. apríl. Núna var gervigreind notuð til að myndskreyta frétt um að farþegaþota hafi verið flutt í Sandvík þar sem henni verði komið fyrir sem aðdráttarafl fyrir ferðamenn. Það er víst svo vinsælt að setja rusl út í náttúruna og rukka fyrir bílastæðin við ruslahauginn.
Farþegaþota flutt með pramma til Sandvíkur

Hvað boðaði lyktin austan við Grindavík?
Í aðdraganda eldgossins sem varð þann 1. apríl við Grindavík fundu menn megna brennisteinslykt austan við Grindavík. Sérfræðingar voru sendir á staðinn og við fluttum frétt, sem var ein af þeim mest lesnu á síðasta ári. Það á reyndar við um margar aðrar fréttir af jarðhræringum.
Megn brennisteinslykt austan Grindavíkur
Matur í fréttum
Mathöll opnaði á Ásbrú á árinu og frétt sem við skrifuðum um þá opnun er ein af tíu mest lesnu fréttum ársins.
Völlur mathöll hefur opnað á Ásbrú
Allt á kafi í Nátthaga
Já, náttúruöflin létu til sín taka á árinu. Sjávarflóð í mars rötuðu í nokkrar fréttir á vf.is og frétt um Nátthaga við Sandgerði á kafi í sjó var ein af þeim mest lesnu.
Allt á kafi í Nátthaga eftir kvöldflóðið
Mikil sjávarflóð í Suðurnesjabæ
Hurð skall nærri hælum í Grindavík
Og talandi um sjávarflóð, þá höfðu Grindavíkingar áhyggjur af hátti sjávarstöðu á árinu, þar sem land hefur víða lækkað umtalsvert við Grindavík. Segja má að hurð hafi skollið nærri hælum en flóðið náði ekki eins langt inn á landi eins og menn óttuðust.

Andlát Stefáns
Stefán Kristjánsson, útgerðarbóndi frá Grindavík, féll frá á árinu, langt fyrir aldur fram. Frétt af andlátinu var mikið lesin og flestir stærstu fjölmiðlar landsins vitnuðu til fréttarinnar en Stefán var áberandi í bæjarlífi Grindavíkur, rak útgerð og fiskvinnslu, ásamt því að vera öflugur styrktaraðili íþróttastarfs í bænum og talsmaður endurreisnar Grindavíkur.
Stefán Kristjánsson, útgerðarbóndi frá Grindavík, fallinn frá

Í sól og hita suður í höfum
Á árinu 2025 tókum við púlsinn á Suðurnesjafólki sem býr og starfar á Tenerife. Viðtal við Davíð Kristinsson er eitt af topp 10 viðtölum ársins 2025 á vf.is
Nýtt líf undir sólinni á Tenerife
Og enn af þorrablótum
Það nægði ekki lesendum af fá myndir úr stemmningunni á Keflavíkurblótinu, því þegar myndir af gestum sem teknar eru við komuna á blótið voru birtar þá varð allt brjálað, aðsóknarlega séð á vf.is. Þorrablótsmyndirnar eru með því vinsælasta á vf.is á síðasta ári.
Þessi mættu á Þorrablót Keflavíkur 2025
Pólsk hjón hafa stýrt framleiðslunni tuttugu ár
Hjónin Mariusz og Sylvia Andruszkiewicz hófu bæði störf hjá Bakkavör í Njarðvík 14. janúar 2005 og hafa stjórnað framleiðslu félagsins í 20 ár. Félagið skipti um nafn og hét Fram Foods í nokkur ár en frá 2013 hefur félagið borið nafnið Royal Iceland. Við sögðum frá þeim á árinu og fréttin var ein af tíu mest lesnu á árinu 2025.
Pólsk hjón hafa stýrt framleiðslunni tuttugu ár




