Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Aðsent

Rangfærslur leiðréttar
Sunnudagur 9. nóvember 2014 kl. 11:21

Rangfærslur leiðréttar

Davíð Jón Kristjánsson, starfsmaður Reykjanesbæjar, sendi vf.is grein um samþykkt bæjarráðs frá 6. nóv. um aðgerðir til lækkunar kostnaðar vegna fastrar yfirvinnu og fastra aksturstyrkja 170 starfsmanna Reykjanesbæjar. Í kjölfarið skrifar blaðamaður Víkurfrétta síðan „frétt“ upp úr þessari aðsendu grein. Í þessum skrifum öllum er rangfærslur sem ég vil gjarnan leiðrétta.

170 ekki 750
Bæjarráð samþykkti að segja upp ákvæðum um fasta yfirvinnu og fasta aksturstyrki hjá þeim starfsmönnum sem væru með slík ákvæði, annað hvort eða bæði, í sínum ráðningarsamningum. Það munu vera um 170 starfsmenn en ekki 750 eins og segir í greininni. Uppsagnarfrestur er sá sami og á ráðningarsamningum í heild, hjá flestum 3 mánuðir. Breytingin mun því taka gildi frá 1. mars 2015. Einnig var ákveðið að draga úr annarri yfirvinnu í kerfinu eins og kostur er. Það ákvæði snertir hins vegar alla starfsmenn sveitarfélagsins en þeir voru 962 um síðustu mánaðarmót. Þessi 750 tala á því  ekki við rök að styðjast.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Tölvupósturinn til upplýsingar en ekki uppsögnin sjálf
Strax að fundi loknum sl. fimmtudag var ákveðið að senda öllum starfsmönnum Reykjanesbæjar tölvupóst frá formanni bæjarráðs með upplýsingum um afgreiðsluna. Það var gert til þess að starfsmenn sveitarfélagsins þyrftu ekki að lesa um hana í fjölmiðlum en fundargerðir bæjarráðs eru gerðar opinberar strax að fundum loknum og innihalda oft efni og afgreiðslur sem fjölmiðlum þykja áhugaverðar og skrifa um. Þess vegna vitum við að fjölmiðlar bíða spenntir eftir fundargerðunum og þessar ákvarðanir þóttu, eins og komið hefur fram, mjög féttnæmar.

Útsendingin samkvæmt venjulegu verklagi
Tölvupósturinn var sendur út til allra starfsmanna af ritara bæjarstjóra, eins og vant er með aðrar ákvarðanir bæjarstjórnar og bæjarráðs, enda hefur formaður bæjarráðs hvorki netfang eða aðgang að tölvukerfi sveitarfélagsins og getur því ekki sent póst á alla 962 starfsmenn Reykjanesbæjar í einu lagi. Það hafði því ekkert með hreðjar okkar formannsins að gera.

Skriflegar uppsagnir væntanlegar
Þessi afgreiðsla og ákvörðun bæjarráðs er svo forsenda þess að hægt sé fyrir stjórnendur Reykjanesbæjar að setjast niður, maður á mann, með þeim starfsmönnum sem málið varðar og segja upp þessum ákvæðum í ráðningarsamningum á skriflegan hátt. Þau samtöl munu eiga sér stað á næstu dögum og vikum og verður lokið fyrir næstu mánaðarmót.

Mun réttlátara fyrirkomulag
Um síðustu mánaðarmót greiddi Reykjanesbær tæplega 10 þús. klst. vegna fastrar og/eða unninnar yfirvinnu um 750 starfsmanna. Það þýðir að hver þessara 750 starfsmanna hafi unnið að meðaltali um rúmlega 12 klst. í yfirvinnu í mánuðinum. Auðvitað var það ekki svo. Sumir unnu meira og aðrir minna. Sumir þeirra sem eru með ákveðinn fjölda fastra yfirvinnutíma, eins og Davíð Jón, unnu meira og aðrir minna. Enn aðrir skiluðu yfirvinnuskýrslum sem yfirmenn þeirra samþykktu. Með því að fella niður ákvæði um fasta yfirvinnu munu allir starfsmenn fá réttlátari greiðslur. Davíð Jón segist hafa unnið 48 klst. í mánuðinum á undan en aðeins fengið 30 greidda. Er einhver sanngirni í því? Ef nýja fyrirkomulagið hefði verið komið á hefði hann fengið hærri og réttlátari laun miðað við vinnuframlag sitt að því tilskyldu að hans næsti yfirmaður hefði samþykkt vinnuframlagið og talið það nauðsynlegt.

Að lokum vil ég taka fram að hvorki bæjarráðsmönnum né embættismönnum finnst þessar aðgerðir skemmtilegar eða eftirsóknarverðar. Þær eru hins vegar nauðsynlegur hlekkur í því stóra verkefni að lækka rekstrarkostnað Reykjanesbæjar. Launagreiðslur í sinni víðustu mynd eru um 44% af heildarútgjöldum sveitarfélagins og yfirvinna og bílastyrkir með því hæsta sem gerist í samanburði við önnur sveitarfélög. Það væri þolanlegra ef sveitarfélagið væri vel rekið, ætti nóg af peningum, álögur á íbúa væru þær lægstu og skuldir litlar. Staðan er bara því miður ekki þannig.

Kjartan Már Kjartansson
bæjarstjóri