„ég elska að vera hérna“

Markvörðurinn Tiffany Sornpao gekk í raðir Pepsi Max-deildarliðs Keflavíkur fyrr á þessu ári en Tiffany er aðeins 22 ára, hún er í landsliðshópi Tælands og rétt að hefja sinn atvinnumannaferil í knattspyrnu.

Viðtal: Jóhann Páll Kristbjörnsson
Ljósmyndir: JPK og úr einkasafni

Tiffany er landsliðsmarkvörður Tælands þótt hún sé fædd og uppalin í Suðurríkjum Bandaríkjanna. „Mamma er dönsk og pabbi tælenskur, þess vegna get ég leikið með tælenska landsliðinu,“ segir Tiffany en foreldrar hennar hittust sem skiptinemar í Georgia í Bandaríkjunum þar sem hún ólst upp og Tiffany hefur alla tíð búið í þar. 

ég prófaði hinar og þessar íþróttir þegar ég var yngri, eins og sund, fimleika og blak en fótboltinn togaði mig alltaf til baka ...


Tiffany byrjaði sem útleikmaður, þá oftast á kantinum.


Brugðið á leik með foreldrum sínum á ferðalagi í Frakklandi.


Það er alveg sama hvað maður gerir heima, maður byrjar að svitna samstundis – svo þetta er hressandi ...


– Hvernig finnst þér nú að vera komin til Íslands? Reykjanesbær er væntanlega töluvert frábrugðinn Georgia, er það ekki?

„Jú, þar er mjög heitt og mikill raki. Þetta er mjög ólíkt, mér finnst gott að byrja ekki að svitna um leið og ég stíg út fyrir dyrnar. Það er alveg sama hvað maður gerir heima, maður byrjar að svitna samstundis – svo þetta er hressandi.

Tiffany í leik Keflavíkur og Þróttar í Pepsi Max-deild kvenna. VF-mynd: Hilmar Bragi


Ég er að hefja minn atvinnumannaferil og Keflavík er fyrsta liðið sem ég leik með – og ég er virkilega að njóta þess. Þetta er öðruvísi, fólk heldur kannski að vinna við fótbolta sé bara ein klukkutíma æfing á dag og svo hafir þú 23 tíma til að leika þér. Það er alls ekki þannig. Leikmenn þurfa stöðugt að vera með hugann við það sem þeir eru að gera, þetta er stanslaus vinna við að undirbúa sig og byggja upp. Þótt ég hafi meiri frítíma þá hefur verið svolítið erfitt að aðlagast þessu lífi en ég finn samt að þetta er eitthvað sem mig langar virkilega að gera.“

Tiffany segir liðsfélaga sína hafa tekið sér afskaplega vel við komuna hingað og henni hafi fundist hún velkomin og fallið strax vel inn í hópinn.

„Við deilum þrjár saman íbúð og það er gott að hafa félagsskap hver af annari. Ef maður væri einn held ég að það væri leiðigjarnt til lengdar. Ég er bara ein, á ekki kærasta eða neitt svoleiðis, svo ég gat bara pakkað saman og farið. Svo það var frekar auðvelt.“

– Hvernig líst foreldrum þínum á þetta?

„Mamma var hér fyrir tveimur vikum og ég held að þau elski þetta. Kannski vegna reynslu sinnar sem skiptinemar þá eru þau mjög hvetjandi – og það að ég muni mögulega spila á hinum ýmsu stöðum gefur þeim líka afsökun til ferðalaga.

Mamma sagði við mig: „Ó, svo þú ert á Íslandi. Enn sniðugt, ég kíki kannski á þig og elda ofan í þig – og skoða mig kannski aðeins um í leiðinni.“ Þau hvetja mig til þessa lífsstíls, að ferðast og skoða heiminn. Þetta er eitthvað sem ég kann að meta við evrópskan lífsstíl, heima í Bandaríkjunum snýst allt um vinnu frekar en að leyfa sér að njóta lífsins. Ég er ekki að fara að vinna einhverja skrifstofuvinnu á næstunni, það er alveg á hreinu, ég ætla að lifa og njóta. Maður getur bara unnið í takmarkaðan tíma við að spila fótbolta, mig langar ekki að vinna einhverja vinnu frá níu til fimm bara fyrir peningana. Mín vinna er að leika fótbolta, sem ég elska – og ég elska að vera hérna. Ég meina, hvað eru margir sem ákveða bara að fara og búa á Íslandi? Mér finnst ég lánsöm að fá að spila fótbolta og hafa fengið að ganga í skóla og þess háttar.

Foreldrar Tiffany, Choochart Sornpao og Anne Mette Sornpao, kynntust sem skiptinemar í Bandaríkjunum.


Þetta er eitthvað sem ég kann að meta við evrópskan lífsstíl, heima í Bandaríkjunum snýst allt um vinnu frekar en að leyfa sér að njóta lífsins ...


 

Áður en ég var valin í tælenska landsliðin ferðaðist ég talsvert með fjölskyldu minni. Kannski var það auðveldara fyrir okkur af því að mamma er evrópsk og þekkir til í Evrópu. Þannig að við ferðuðumst talsvert þegar ég var yngri. Ég var valin í landsliðshóp Tælands árið 2019 og tel mig hafa verið heppna því það ár var Heimsmeistaramótið haldið í Frakklandi og ég fékk tækifæri til að fara með liðinu þangað og til Belgíu. Öll þessi ferðalög sem bjóðast í gegnum fótboltann eru bara óraunveruleg.“


Andlegur styrkur mikilvægur


„Mér finnst hlutverk markvarðar oft vera vanmetið í liðinu, fáir átta sig á því álagi sem markmenn eru undir því það þarf ekki nema ein mistök markvarðar til að leikurinn tapist. Sóknarmaður getur brennt af tíu dauðafærum án þess að fá á sig jafn harða gagnrýni og markmaður sem fær á sig klaufamark – svo við þurfum að velja skynsamlega hvenær við gerum mistök [eins og það sé hægt].

Ég nota jóga og hugleiðslu til að byggja upp andlegan styrk og svo hefur Sævar [Júlíusson, aðstoðarþjálfari] kennt mér ótrúlega margt sem er nýtt fyrir mér. Eins og ég segi er ég að vaxa og þroskast sem leikmaður og alltaf að læra eitthvað nýtt.“

Þótt ég sé hálf tælensk og hálf dönsk þá tala ég hvorki tælensku né dönsku. Þetta hljómar kannski undarlega en ég hef velt því fyrir mér að kynnast tælenska samfélaginu hér, langar að komast inn í tungumálið ...


Tiffany spyr mig hvort tælenska samfélagið í Reykjanesbæ sé stórt því hún hafi tekið eftir tælensku hofi í bænum.

„Það er bara í göngufæri við þar sem ég bý. Þótt ég sé hálf tælensk og hálf dönsk þá tala ég hvorki tælensku né dönsku. Þetta hljómar kannski undarlega en ég hef velt því fyrir mér að kynnast tælenska samfélaginu hér, langar að komast inn í tungumálið – það myndi t.d. hjálpa mér þegar ég er með landsliðinu. Ég ætla allavega að kynna mér þetta hof og sjá til með hugleiðslu þar.

Ég lít ekki á sjálfa mig sem trúaða en andlega tel ég mig vera. Þótt ég hafi alist upp í Georgia þar sem kristni er mjög ráðandi hafa þessi mál aldrei skipt foreldra mína miklu máli. Pabbi er búddisti en mamma alin upp í kristni, samt voru aldrei neinir árekstrar þeirra á milli, hvorugt reyndi að fá hitt til að taka upp sína trú – þú gerir þitt og ég geri mitt var frekar viðkvæðið.“


Keramik og Pick-up Soccer


Það róar hugann og er streytulosandi. Það er líka svo skemmtilegt að mamma byrjaði líka á þessu fyrir svona ári síðar, sem er yndislegt. Svona sameiginlegt áhugamál hjá okkur tveimur ...

Þegar við ræðum um önnur áhugamál segist Tiffany hafa mjög gaman af leir- og keramikvinnslu og eigi eftir að finna sér staði hér til að sinna því hér. 

„Ég kynntist keramikvinnslu í skóla og fannst það mjög gefandi. Ég stóð sjálfa mig jafnvel að því að sleppa mat og svona því ég fékk svo mikið út úr þessu. Það róar hugann og er streytulosandi. Það er líka svo skemmtilegt að mamma byrjaði líka á þessu fyrir svona ári síðar, sem er yndislegt. Svona sameiginlegt áhugamál hjá okkur tveimur.

Svo stefni ég á að nota tímann til að lesa meira, ferðast og þess háttar. Heima tók ég oft þátt í „Pick-up Soccer“. Þá er spilað á kvöldin en þetta gengur þannig fyrir sig að svona „viðburður“ er settur í loftið: „Til í að spila í kvöld?“ Þetta er frekar lítill hópur eða samfélag og orðið er látið berast. Svo hittist fólk á einhverjum stað og spilar fótbolta, mætir með keilur og bolta og bara skemmtir sér. Þetta er allskonar fólk sem kemur úr öllum áttum og þekkist jafnvel ekki neitt. Þá getur maður farið einn eða kannski tvö eða þrjú saman og svo verður svona til þessi hittingur. Þetta er skemmtilegt því svona viðburðir eru haldnir á öllum tímum og hingað og þangað. Maður sér ný andlit og kynnist nýju fólki.“


Spila fyrir Keflavík


– Hvernig líst þér á íslensku deild­ina af því sem þú hefur séð?

„Ég held að Keflavík eigi eftir að standa sig í deildinni í ár. Miðað við það sem ég hef eftir liðsfélögum mínum þá er enginn stórmunur á liðunum í deildinni og okkar lið á eftir að ná að kynnast og ná betur saman. Við erum nokkrar nýjar í liðinu, ég meina Aerial [Chavarin] var bara að spila sinn fyrsta leik í gær, svo við eigum eftir læra betur inn á hver aðra og slípa okkar leik.“

Tiffany hefur sýnt flotta takta milli stanganna hjá Keflavík. VF-mynd: Hilmar Bragi