Keflavík hverfur í skóg
Jón Stefánsson og Guðrún Sigurbergsdóttir settu niður fyrstu trén árið 1953
Keflavík er að hverfa í skóg! Þetta er það sem blasir við þeim sem skoða gróðurfar í bænum. Gróður í Reykjanesbæ hefur tekið mikinn vaxtarkipp á síðustu árum. Hlý sumur og mildir vetrarmánuðir eiga örugglega stóran þátt í því. Hús eru víða að hverfa í trjágróðri og opin svæði eru orðin mikið gróin. Það sést vel t.a.m. á Vatnsholtinu og við gönguleiðir, m.a. á svokölluðu rómantíska svæði, ofarlega í Keflavík.
![](/media/1/keflavikurskogur1906174.jpg)
Skógi vaxin Keflavík með Skólaveginn fremstan og svo horft yfir byggðina til norðurs. VF-myndir: Hilmar Bragi
Á árunum upp úr 1950 er byggð farin að þróast ofan Hringbrautar í Keflavík. Húsin við Skólaveg, gengt gamla malarvellinum, eru byggð á þessum árum. Það voru allt starfsmenn varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli sem tóku sig saman og byggðu húsin við götuna og hjálpuðust að við húsbyggingar.
![](/media/1/jongunna10.jpg)
Heiðurshjónin Guðrún Sigurbergsdóttir og Jón Stefánsson í garðinum sínum að Skólavegi 22 í Keflavík. Þar fluttu þau inn í nýbyggt hús snemmsumars 1953 og hófu þegar að gróðursetja.
Jón Stefánsson og Guðrún Sigurbergsdóttir, Jón og Gunna, voru fyrst til að flytja inn í hús við Skólaveg ofan Hringbrautar en þau byggðu að Skólavegi 22. Þau fluttu inn snemmsumars 1953. Jón var þá starfsmaður varnarliðsins en þar vann hann í 10 ár áður en hann tók við skósmíðaverkstæði tengdaföður síns, sem hann rak þar til fyrir fáeinum árum. Jón verður níræður í haust.
![](/media/1/jongunna07.jpg)
Gunna virðir fyrir sér garðinn að Skólavegi 22 en Jón hafði nýlokið við að slá blettinn þegar okkur bar að garði.
![](/media/1/jongunna04.jpg)
Jón Stefánsson hugar að gróðri við innkeyrsluna að heimilinu við Skólaveg 22.
Heiðurshjónin Jón og Gunna á Skólavegi 22 tóku á móti blaðamanni Víkurfrétta. Jón hafði þá nýverið lokið við slátt í garðinum en þau hjón hugsa vel um garðinn við heimili sitt. Í garðinum þeirra eru tuttugu tegundir af trjám og þau hæstu örugglega um og yfir sex metra há. Gullregnið er þar í uppáhaldi en það blómstrar ekki strax. Trén eru allt frá því að vera þessi hefðbundnu íslensku yfir í tré af erlendum uppruna. Þannig eru tvö eplatré í garðinum þeirra en hvorugt þeirra hefur gefið af sér ávöxt.
![](/media/1/keflavikurskogur1906172.jpg)
Aðspurð hvenær fyrstu trjáplönturnar hafi verið gróðursettar, segir Gunna að það hafi verið strax. Hún segir að í gamla daga hafi verið talað um að það væri varla hægt að rækta rabbarbara í Keflavík. Jón er hins vegar alinn upp austur á Héraði og með Hallormsstaðarskóg sem leiksvæði sitt í æsku. Hann hafi því viljað hafa trjágróður fyrir augunum og strax hafið gróðursetningu í garði þeirra hjóna og hugsað um hann alla tíð síðan. Trén veita í dag mikið skjól og draga úr vindi. Að sama skapi er útsýnið frá heimilinu við Skólaveg ekki eins mikið og í gamla daga, en það kemur ekki að sök að sögn þeirra hjóna.
![](/media/1/jongunna11.jpg)
Koparreynir er falleg trjáplanta. Þessi er undir vegg við gömlu skóvinnustofuna sem var vinnustaður Jóns í áratugi.
![](/media/1/jongunna13.jpg)
Koparreynir með fallegum blómum
![](/media/1/jongunna02.jpg)
Grindverkið að Skólavegi 22 var staðsteypt í bílskúrnum. Grindverk sem þessi voru algeng á árum áður og voru mikil prýði.