Vilhjálmur hættir á Alþingi : „Vil losa þann kraft sem íbúarnir og fyrirtækin hafa“
Málefnasamningur nýs meirihluta Sjálfstæðisflokks og Miðflokks í Reykjanesbæ var undirritaður síðdegis. Vilhjálmur Árnason, verðandi bæjarstjóri, segir traust og málefnalegan samhljóm einkenna samstarfið. Hann mun láta af þingmennsku á næstunni til að snúa sér alfarið að bænum.
Nýr meirihluti er að taka við völdum í Reykjanesbæ eftir að fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Miðflokksins undirrituðu málefnasamning sinn í dag. Vilhjálmur Árnason, sem leiðir samstarfið sem verðandi bæjarstjóri, segir að samstarfið leggist afar vel í hann.
„Samtalið gekk mjög vel, það var strax mikið traust á milli aðila og mikill málefnalegur samhljómur,“ segir Vilhjálmur og bætir við að flokkarnir hafi strax fundið fyrir samleið í kosningabaráttunni.
Áhersla á skipulagsmál, íþróttir og lægri álögur
Aðspurður um helstu áherslur nýja meirihlutans nefnir Vilhjálmur breytingar í skipulagsmálum, þar sem ætlunin sé að ryðja hindrunum úr vegi til að flýta fyrir uppbyggingu atvinnulífs og íbúða. Þá verði rík áhersla lögð á ábyrgari og skilvirkari rekstur með betri áætlanagerð og fullfjármögnun framkvæmda áður en í þær er farið.
Íþróttamál verða sömuleiðis í fyrirrúmi, en þar horfir nýi meirihlutinn til þriggja þátta: að styrkja rekstrarumhverfi íþróttahreyfingarinnar, bæta og viðhalda aðstöðu, og tryggja aðgengi allra barna að íþróttastarfi.
„Það er náttúrulega fyrst og fremst aðgengi í gegnum æfingagjöldin, þau þarf að lækka þannig að öll börn, óháð efnahag, hafi aðgengi,“ segir Vilhjálmur. Ásamt lækkun æfingagjalda stendur til að lækka fasteignagjöld og aðrar álögur á bæjarbúa.
Kveður Alþingi í júní
Vilhjálmur lýsti því yfir strax í janúar að hann stefndi á bæjarstjórastólinn og segir ferlið síðan þá hafa verið bæði skemmtilegt og spennandi, jafnvel enn skemmtilegra nú þegar markmiðinu er náð. Hann viðurkennir þó í léttum tón að vera ekki búinn að máta sjálfan bæjarstjórastólinn ennþá og viti hreinlega ekki hvernig hann líti út.
Breytingarnar þýða jafnframt að Vilhjálmur mun láta af störfum sem alþingismaður Sjálfstæðisflokksins.
„Það liggur þá fyrir núna að ég muni hætta á Alþingi, þannig að nú þarf ég bara að taka það upp við minn þingflokk og minn varaþingmann hvernig við framkvæmum það,“ segir hann, en ný bæjarstjórn tekur formlega við í byrjun júní.
Vilhjálmur segist hlakka mikið til að leiða Reykjanesbæ, sem hann kallar „bæ tækifæranna“.
„Hér eru nefnilega mörg tækifæri og hér er svo öflugt fólk. Það sem ég vil gera er að losa þann kraft sem íbúarnir og fyrirtækin hér hafa úr læðingi og þá verður samfélagið öflugt.“
