Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
laugardaginn 13. febrúar 2021 kl. 08:19

Þörungar vaxa í diskóljósum á Ásbrú

Frumkvöðlafyrirtækið Algalíf á Ásbrú hóf starfsemi 2013 og hefur vaxið mikið. Nærri 40 manns starfa við framleiðslu fæðubótarefnis og verða nærri 80 eftir tvö ár. Bygging sjö þúsund fermetra nýbyggingar skapar meira en eitt hundrað störf á næstu tveimur árum.

Rúmlega eitt hundrað störf verða til við smíði sjö þúsund fermetra nýbyggingar við núverandi verksmiðu Algalífs á Ásbrú. Þrjátíu og fimm framtíðarstörf verða til við stækkunina og Algalíf verður eitt stærsta örþörungafyrirtæki heims. Framkvæmdin kostar fjóra milljarða og fjárfestingin kemur erlendis frá en eigendur fyrirtækisins eru í Noregi. Ársframleiðsla Algalífs rúmlega þrefaldast og Orri Björnsson, forstjóri, segir að ársvelta fyrirtækisins muni nærri fjórfaldast og fara úr um 1.500 milljónum króna í um 5,5 milljarða. Starfmannafjöldi mun tvöfaldast, fara úr 37 í yfir 70 manns.

Litskrúðug nýsköpun á Ásbrú

Framleiðsla Algalífs á astaxantín úr örþörungum fer fram í stýrðu umhverfi innanhúss og er umhverfisvæn og ekkert jarðefnaeldsneyti er notað í ferlinu. Notast er við sérstök LED-ljós og tölvustýrð ljósa- og hitakerfi við ræktun örþörunganna í lokuðum rörakerfum sem þýðir að vatns-, raforku- og landnotkun er í lágmarki. Þetta tryggir að bæði eru magn og gæði stöðug. Úr þörungunum er unnið fæðubótaefnið astaxantín. Algalíf hefur getið sér gott orð á alþjóðavettvangi fyrir sjálfbærni, gæði og afhendingaröryggi og er orðinn einn stærsti þörungaframleiðandi í heimi.

Framleiðsla tveggja ára seld

„Markaðshorfur eru mjög góðar og fjögurra milljarða erlend fjárfesting sýnir trú á því sem við erum að gera. Sérhæft og vel menntað starfsfólk heldur framleiðslukostnaði Algalífs í skefjum með nýsköpun og nýtingu hátæknilausna á öllum stigum. Því er náttúrulegt astaxantín frá Algalíf mjög vel samkeppnishæft  á alþjóðamarkaði og sala gengur mun betur en upphaflegar áætlanir gerðu ráð fyrir,“ segir Orri.

Þessi frumkvöðlastarfsemi hófst á gamla varnarsvæðinu árið 2013 en áður hlupu Varnarliðsmenn innanhúss í hluta húsnæðisins sem Algalíf notar. Það hefur verið stækkað og framkvæmdir við rúmlega tvöföldun á því hefjast á vormánuðum.

Stuðningur heimamanna mikilvægur

Orri segir að mikill stuðningur hafi komið frá Reykjanesbæ í upphafi og sömuleiðis frá Kadeco sem hafi gengið vel frá húsnæðinu þannig að hægt hafi verið að setja upp starfsemina fljótt og vel.

„Fljótlega eftir að starfsemin hófst þurfti að laga tæknina og ná upp meiri framleiðni. Það tókst og er lykilatriði í starfseminni. Þegar því var náð var farið í stækkun verksmiðjunnar sem tók þrjú, fjögur ár og lauk á síðasta ári. Þá fyrst náði verksmiðjan fullum afköstum í framleiðslunni. Mikil hagkvæmni felst í meiri stærð verksmiðjunnar og þá eru markaðir góðir. Því var ákveðið að halda áfram að stækka verksmiðjuna enn frekar.“

Jákvæðir eigendur

Eigendurnir eru í Noregi og Orri segir að þeir hafi verið jákvæðir fyrir uppbyggingunni frá upphafi og séu með reynslu úr fæðubótastarfsemi. „Þeir hafa verið mjög góðir eigendur og sýnt þessu mikinn skilning því það hefur ekki alltaf gengið vel í framleiðslunni og sölunni. Þeir hafa stutt okkur vel og alltaf haft trú á því sem við erum að gera og staðfesta það með því að fara í þessa miklu stækkun á verksmiðjunni núna. Þetta skiptir mjög miklu máli í svona frumkvöðlastarfsemi að hafa nógu mikið og þolinmótt fjármagn, traust og skilning. Skilur í raun á milli feigs og ófeigs í svona frumkvöðlastarfsemi,“ segir Orri.

Algalíf er hráefnisframleiðandi og efnið er notað í fæðubótaefni að langmestu leyti. Fyrirtækið er ekki með vörumerki í smásölu og einbeitir sér að framleiðslu hráefnisins en hverjir eru notendur vörunnar?

„Þetta er fólk sem er í líkamsrækt og einnig þeir sem eru með vandamál í liðamótum. Í grunninn er þetta andoxunarefni þannig að það hentar þeim vel sem eru að æfa mikið og vilja ná hraðari endurheimt. Eins getur efnið verið væg sólarvörn því þörungurinn er að framleiða astaxantín til að verja sig fyrir sólarljósi og það virkar líka á mannslíkamann. Konur á leið í sólina á Tenerife hafa keypt vöruna til að verja húðina.“

Góður heimsmarkaður

Orri segir að heimsmarkaðurinn sé góður fyrir þörungana um þessar mundir en fyrirtækið er með um 50 kaupendur, þar af sex, sjö mjög stóra sem kaupa 80 til 90% af framleiðslunni. Þeim muni fjölga eftir stækkunina. Öll framleiðsla þessa árs og næsta árs er seld og því er erfitt fyrir Algalíf að lofa meiru fyrr en eftir stækkunina.

Góðar aðstæður

Aðstæður á Íslandi eru að mörgu leyti mjög góðar fyrir þörungaframleiðslu að sögn frumkvöðulsins. „Það er nóg til af vatni og raforku og verðið á henni er ekki mjög hátt. Lágt og jafnt hitastig gerir stýringu í frameiðslunni auðveldari og eins fáum við minna af þörungum og aðskotalífverum inn í kerfin því þær sem þrífast vel á Íslandi líður ekki vel í 25 til 30 gráðu heitu ræktunarkerfi,“ segir Orri Björnsson.