Sumarmagasín: Ósk barnanna rætist í „Hjarta Ásbrúar“
Nýtt og glæsilegt samfélagshús fyrir börn og fjölskyldur, Hjarta Ásbrúar, hefur opnað dyr sínar í Andrews Theater. Hugmyndin að húsinu er algjörlega komin frá börnunum sjálfum. Vorið 2024 tóku um 400 nemendur í Háaleitisskóla þátt í samráðsverkefninu Börnin að borðinu þar sem þau kölluðu eftir miðlægum samverustað í hverfinu sínu. Verkefnið vorið áður vakti mikla athygli og hlaut meðal annars Hönnunarverðlaun Íslands.
Ásbrú er meðal fjölbreyttustu samfélaga landsins, en í Háaleitisskóla eru um 70% nemenda af erlendum uppruna. Hjarta Ásbrúar á að þjóna sem brú á milli ólíkra menningarheima og vera samverustaður fyrir alla fjölskylduna, þvert á kynslóðir og tungumál.
Í sumar verður boðið upp á stútfulla og fjölbreytta dagskrá sem er algjörlega ókeypis og opin öllum, án allra krafna um skráningu. Má þar nefna gjaldfrjáls íþróttanámskeið í samstarfi við Keflavík og Njarðvík, foreldramorgna, fjölskyldugrill, leiklistarsmiðjur og sýningar frá HM í fótbolta á risaskjá. Markmiðið er að sumarstarfið virki sem mikilvæg brú inn í skipulagt tómstundastarf vetrarins.
Bak við verkefnið stendur öflugur hópur bakhjarla, en reksturinn er í höndum Fjörheima og ÍRB og er liður í innleiðingu farsældarlaganna á Suðurnesjum.
Kíktu á myndbandið hér að ofan til að sjá stemninguna og heyra nánar í aðstandendum verkefnisins!

