Fimmtudagur 29. ágúst 2019 kl. 20:30

Málefni líðandi stundar í Suðurnesjamagasíni vikunnar

Suðurnesjamagasín er á dagskrá Hringbrautar í kvöld kl. 20:30. Í þættinum er fjallað um málefni líðandi stundar á Suðurnesjum.

Sandgerðingurinn Sigurður Guðjónsson eða „Siggi í Báru“ er byggingameistari og þrátt fyrir að hann hafi orðið áttræður nú í ágúst þá er hann alls ekki hættur að byggja hús. Þau eru bara aðeins minni nú en áður. Siggi vinnur að endurgerð eldri húsa í Sandgerði. Hann ver öllum stundum í að smíða líkön af húsum sem byggð voru í Sandgerði fyrir árið 1940. Flest eiga húsin það sameiginlegt að hafa verið rifin eða tekið miklum breytingum. Í þættinum er rætt við Sigga og sýndar myndir af smíðagripunum hans.


Undirbúningur Ljósanætur stendur nú sem hæst og stefnt að plastlausri hátíð. Fyrirtækja- og verslunareigendur í Reykjanesbæ hafa brugðist vel við viðleitni bæjaryfirvalda og samtökin Betri bær hófu, ásamt bæjarstjóra og Bókasafni Reykjanesbæjar, átak sem miðar að plastlausri Ljósanótt. Markmiðið er að sauma 1000 taupoka á Bókasafni Reykjanesbæjar fyrir Ljósanótt, sem m.a. verði nýttir í verslunum á Hafnargötu. Í þættinum er rætt við Sigurgest Guðlaugsson, verkefnastjóra hjá Reykjanesbæ, um plastlausa Ljósanótt.


Hópur fólks hreinsaði um tvö tonn af rusli úr Mölvík á Reykjanesi á tveimur tímum í blíðunni í síðustu viku. Sundhópurinn Marglyttunar í samstarfi við Bláa herinn stóð fyrir hreinsun Mölvíkur. Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, hjálpaði til við hreinsunina. Tómas J. Knútsson hjá Bláa hernum er í viðtali við Suðurnesjamagasín vikunnar.


Jóhann Friðrik Friðriksson tók nýverið við stöðu framkvæmdastjóra hjá Keili, miðstöð vísinda, fræða og atvinnulífs á Ásbrú í Reykjanesbæ. Keilir hefur stækkað ört á þeim áratug sem skólinn hefur starfað. Nýjasta afkvæmið er Menntaskólinn á Ásbrú sem menntamálaráðherra opnaði formlega í síðustu viku. Suðurnesjamagasín ræddi við Jóhann á þeim tímamótum.


Tónlistin mun óma víða í Ljósanæturvikunni. Reykjanesbær býður uppá tónleika með Sinfóníuhljómsveit Íslands í Stapa í tilefni af 25 ára afmæli bæjarins, heimatónleikar verða um allan bæ. Þá verða hátíðartónleikar Með blik í auga og fjölmargir aðrir tónlistarviðburðir í Ljósanæturvikunni. Meðal annars mun hljómsveitin Mannakorn halda tónleika á Ásbrú. Einn af stóru viðburðum Ljósanætur er tónlistarviðburðurinn Með blik í auga. Nú er það tímaferðalag aftur á bak til áranna þegar Eydís var ung! 80’s-tónlistin verður í hávegum höfð. Nú verður Blikið í Stapanum en æfingar hafa staðið yfir síðustu kvöld í gömlu dráttarbrautinni í Keflavík.

Í þættinum er rætt við Ellen Kristjánsdóttur söngkonu, Atla Rúnar skemmtanalöggu, Kristján Jóhannsson kynni og Heru Björk söngkonu.

Suðurnesjamagasín er þáttur úr smiðju Víkurfrétta ehf. Þátturinn er á dagskrá Hringbrautar og vf.is kl. 20:30 á fimmtudagskvöldum.