Þriðjudagur 2. maí 2023 kl. 09:40

Suðurnesjamagasín á miðlum Víkurfrétta

Suðurnesjamagasín er sjónvarpsþáttur úr smiðju Víkurfrétta sem á sér lana sögu en fyrstu þættirnir komu fram á sjónarsviðið árið 2009 á sjónvarpsstöðinni ÍNN. Árið 2016 eignaðist þátturinn heimili á sjónvarpsstöðinni Hringbraut og var þar vikulega á dagskrá þar til í endaðan mars síðastliðinn, þegar sjónvarpsstöðin hætti rekstri. Nú. verður Suðurnesjamagasín aðgengilegt á vef og samfélagsmiðlum Víkurfrétta.

Í þætti síðpustu viku var farið um víðan völl á Suðurnesjum. Við hófum leikinn á fjölmennu skólaskákmóti Suðurnesja sem fram fór í Stapaskóla í síðustu viku. Úr skákinni er farið í Stúdíó Paradís sem er í sveitasælu rétt við Sandgerði. Þar hittum við fyrir Jóhann Ásmundsson, sem er bassaleikari hinnar þekktu hljómsveitar Messoforte.

Úr hljóðverinu í Suðurnesjabæ er haldið til Grindavíkur og tekið hús á tónelskum systkinum hjá Vísi hf. Þau hafa haldið tónleika í tengslum við Sjóarann síkáta og halda heiðri foreldra sinna á lofti.

Frá Grindavík er farið á tónleika hjá Karlakór Keflavíkur. Kórinn mun fagna 70 ára afmæli í haust en er byrjaður að hita upp fyrir hátíðina sem þá verður með vortónleikum.

Í lok þáttar er svo sagt frá miðlum Víkurfrétta og helstu efnistökum. M.a. sýnum við ykkur frá golfi í Suður-Afríku sem golfvefurinn Kylfingur.is kynnti sér nýverið.

Þessi þáttur af Suðurnesjamagasíni er númer 439. Alla þættina má sjá á Youtube-rás Sjónvarps Víkurfrétta. Þættirnir í heild sinni og stök innslög úr þáttunum má einnig sjá á vef Víkurfrétta, vf.is.