Ritstjórn
Ritstjórn skrifar
laugardaginn 12. október 2019 kl. 12:43

Sérvirk prótein ræktuð í byggi í gróðurhúsi við Grindavík

ORF Líftækni hefur þróað tækni til að framleiða sérvirk prótein í byggi, en aðferðin er afrakstur áratuga vísinda- og þróunarstarfs. Prótein þessi eru notuð sem innihaldsefni í BIOEFFECT húðvörur fyrirtækisins, seld til læknisfræðilegra rannsókna og nýtt í önnur þróunarverkefni fyrirtækisins.

Í Suðurnesjamagasíni í þessari viku er gróðurhúsið, Græna smiðja ORF Líftækni, heimsótt en þar hefur verið opnuð gestastofa. Græna smiðjan er vistvænt 2000 fermetra hátækni gróðurhús sem nýtir jarðvarma, íslenskan vikur og hreint, íslenskt vatn til þess að rækta byggplöntur, en hún getur hýst allt að 130 þúsund byggplöntur á sama tíma.