Mánudagur 20. febrúar 2023 kl. 10:50

Sálumessa eftir Verdi í Stapa á miðvikudaginn

Óperufélagið Norðuróp og Tónlistarskóli Reykjanesbæjar munu flytja Sálumessu eftir Giuseppe Verdi í Stapa, Hljómahöll í Reykjanesbæ miðvikudaginn 22. febrúar. Sálumessan er um það bil 90 mínútna langt tónverk fyrir fjóra einsöngvara, kór og sinfóníuhljómsveit og er ein allra þekktasta sálumessa tónbókmenntanna. Verkið er flutt árlega víða um heim en afar sjaldan hér á landi.


Á þessum tónleikum verður verkið flutt af 35 manna sinfóníuhljómsveit, 60 manna kór einsöngsmenntaðra söngvara, langt kominna söngnemenda, tónlistarkennara, þjálfaðra áhugasöngvara og fjórum einsöngvurum. Stapi í Hljómahöll er glæsilegur tónleikasalur með stórt svið, um 400 sæti í sal og á svölum og hljómburður er sérlega góður. Stjórnandi er Jóhann Smári Sævarsson sem stendur jafnframt fyrir viðburðinum í samvinnu við fleiri.

Miðasala er á tix.is

Stjórnandi: Jóhann Smári Sævarsson.
Konsertmeistari: Una Sveinbjarnardóttir.
Einsöngvarar: Hallveig Rúnarsdóttir, sópran, Guja Sandholt, mezzosópran, Jóhann Friðgeir Valdimarsson, tenór og Keith Reed, bassi.

Óperufélagið Norðuróp stofnaði fyrir nokkrum árum óperustúdíó í Reykjanesbæ í samvinnu við Tónlistarskóla Reykjanesbæjar og Hljómahöll, með uppfærslu á óperunni „Brúðkaup Fígarós“ eftir   W. A. Mozart. Verkefnið var opið öllum söngvurum og söngnemendum Tónlistarskólans sem og öðrum efnilegum söngvurum á Suðurnesjum og annars staðar af landinu. Aðstæður eru til staðar í glæsilegri Hljómahöll.

Eftir mjög vel heppnaða og fjölsótta uppfærslu Óperufélagsins Norðuróps og Tónlistarskóla Reykjanesbæjar á söngleiknum „Fiðlarinn á þakinu“ eftir J. Bock sem sýndur var í Stapa, Hljómahöll, haustið 2019 og þann mikla áhuga þeirra sem tóku þátt í því viðamikla verkefni og eftir vel heppnaðan flutning á „Mozart Requiem“ vorið 2022, þá hefur verið ákveðið að halda samstarfi Óperufélagsins Norðuróps og Tónlistarskóla Reykjanesbæjar áfram og ráðast í flutning þessa magnaða verks, Sálumessu eftir Giuseppe Verdi.

Óperufélag Norðuróps og Tónlistarskóla Reykjanesbæjar, setti upp mjög vel heppnaða og fjölsótta sýningu  á söngleiknum „Fiðlarinn á þakinu“ eftir J. Bock í Stapa, Hljómahöll haustið 2019. Sökum mikils áhuga þeirra sem tóku þátt í því viðamikla verkefni og eftir vel heppnaðan flutning á „Mozart Requiem“ vorið 2022, þá hefur verið ákveðið að halda samstarfi Óperufélagsins Norðuróps og Tónlistarskóla Reykjanesbæjar áfram. Fyrsta verkefnið, að ráðast í flutning þessa magnaða verks, Sálumessu eftir Giuseppe Verdi.