Föstudagur 21. október 2022 kl. 15:00

Ósýnileg – Nýtt tónlistarmyndband Elízu Newman frumsýnt á VF

Tónlistarkonan Elíza Newman sendi nýlega frá sér nýtt lag, Ósýnileg sem vakið hefur athygli fyrir kröftugan boðskap. Lagið er af væntanlegri breiðskífu Elízu, Wonder Days, sem kemur út 28. október og er hennar fimmta sólóplata.

Margrét Seema Takyar leikstýrði og skaut þetta nýja myndband sem Elíza sendi frá sér föstudaginn 21. október.  

Hugmyndin að laginu kviknaði í framhaldi af #METOO byltingunni og er einhvers konar endurspeglun á því hvernig það er að vera kona í dag. Lagið öðlaðist svo meiri dýpt eftir að Elíza gekk í gegnum erfið veikindi á Covid tímabilinu og þá einangrun sem því fylgdi - sem leiddi til þess að henni fannst hún í raun ósýnileg. 

Tónlistarmyndbandið er tekið úr heimildarmynd Margrétar #Hashtag Tour sem gerist einmitt á sama tíma og metoo braust út 2017. Sú mynd mun koma út á næsta ári 2023. Margrét segir þegar hún heyrði lagið þá hugsaði hún strax um þetta óútgefna efni myndar sinnar sem virtist endurspegla nákvæmlega einhverja tilfinningu og ólgu sem hún fann fyrir þegar hún heyrði lagið hennar Elízu fyrst. 

„Ég leik mér oft að fyrirfram ákveðnum hugtökum og klisjum í verkum mínum,” segir Margrét. „Hérna skipti ég út gamla karl rokkaranum, einan á hótel herberginu sínu, sem við höfum séð alltof oft í allskonar myndum og ákvað að tími, rokkara konunnar, væri komin til að taka sitt pláss og gera þetta á sinn hátt.”

Karakterinn í tónlistarmyndbandinu heitir Beast og er leikin af Höllu Ólafsdóttur og geta landsmenn séð hana og Amöndu Apetrea í dansverkinu Dead í Reykjavik Dans Festival í nóvember.

Lagið hennar Elízu hefst sem róleg ballaða og endar í brjáluðu rokki og er ákall til kvenna því konur eru ofurafl og þær flytja fjöll þó svo þær geri það oftast án láta, yfirgangs og ofsa og þær eru svo sannarlega ekki ósýnilegar eins og lag Elízu og myndband Margrétar sýnir á fullu krafti.

 Hér má hlusta og horfa á lagið:

Myndbandið á Youtube : https://youtu.be/c3ZRlx7iYac 

Spotify hlekkur á lagið: https://open.spotify.com/album/4ophH7oW1OpcIKcXBGz63e?si=nCuMyGIKQAmfhs3ZYANtfA