Sunnudagur 17. mars 2019 kl. 10:19

Framtíðin björt hjá Höllu og Grindvíkingum

Halla María Svansdóttir, eigandi veitingastaðarins Hjá Höllu, hlaut Menningarverðlaun Grindavíkur 2019 en verðlaunin voru afhent í Grindavíkurkirkju á setningu Menningarviku.
 
Halla María hefur haft gríðarlega jákvæð áhrif á matarhefð í Grindavík og veitingastaður hennar hefur notið mikilla vinsælda hjá Grindvíkingum sem og öðrum. Í samtali við Víkurfréttir segir Halla viðtökurnar hafa verið virkilega góðar en fyrir utan það að bjóða upp á veitingar á staðnum sínum hefur hún til að mynda haldið ýmsa viðburði á veitingastaðnum fyrir bæjarbúa, sem hún segir til þess gert að þeir þurfi ekki að leita út fyrir bæjarmörkin.
 
Höllu er umhugað um bæjarfélagið sitt og hefur frumkvöðlastarf hennar skilað sér í auknum tekjum og atvinnutækifærum í Grindavík. Að sögn hennar eru verðlaunin því mikil hvatning. „Það er virkilega skemmtilegt að fá þessi verðlaun. Það er gaman að fá viðurkenningu fyrir eitthvað sem er búið að vera erfitt og mikil vinna. En það verður til þess að maður heldur ótrauður áfram. Framtíðin er björt.“