Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
sunnudaginn 22. ágúst 2021 kl. 15:40

Fjóla Margrét tók stóra titilinn - tvöfaldur Íslandsmeistari í golfi

Fjóla Margrét Viðarsdóttir, kylfingur í Golfklúbbi Suðurnesja varð Íslandsmeistari í höggleik en leikið var á Hlíðavelli í Mosfellsbæ um helgina.

Fjóla lék á 12 höggum yfir pari þrjá hringina og var þá alla á 76 höggum. Hún var 4 höggum betri en næsti kylfingur.

Fjóla sigraði á Íslandsmótinu í höggleik um síðustu helgi og bætti nú stærsta titlinum í safnið, tvövalt hjá efnilegu golfstelpunni úr Keflavík. Þá varð hún klúbbmeistari fullorðinna í Golfklúbbi Suðurnesja fyrr í sumar.

Víkurfréttir ræddu við Fjólu Margréti degi áður en hún hóf leik á Íslandsmótinu í höggleik eins og sjá má í meðfylgjandi sjónvarpsviðtali sem og texta hér að neðan.

Æfir með strákunum í Leirunni

„Ég fór ung að árum með bróður mínum út á golfvöll og byrjaði svo að spila meira þegar ég var sex ára. Féll svo algerlega fyrir íþróttinni þegar ég varð aðeins eldri,“ segir Fjóla Margrét Viðarsdóttir, kylfingur úr Golfklúbbi Suðurnesja en hún hefur unnið tvo stóra titla í golfinu í sumar. Um síðustu helgi varð hún Íslandsmeistari í holukeppni 14 ára og yngri í stúlknaflokki en leikið var á Grafarholtsvelli í Reykjavík, elsta 18 holu golfvelli landsins. Hún varð klúbbmeistari Golfklúbbs Suðurnesja fyrr í sumar og ætlar að reyna við þriðja stóra titilinn á Íslandsmótinu í höggleik um næstu helgi.

Fjóla þykir afar efnileg og er komin í meistaraflokk og niður í 4,5 í forgjöf. Bróðir hennar, Birkir, var góður kylfingur og byrjaði líka ungur að árum og hann hvatti litlu systurina áfram. Og móðirin, Lilja Kristrún Steinarsdóttir, var systkinunum mikill stuðningur og er enn með Fjólu sem sækir fjölda golfmóta víða um land. Birkir er í háskólanámi og hvílir nú aðeins golfkylfurnar.

„Það er skemmtilegt og þægilegt við golfið að geta stundað það þegar það hentar manni. Maður er ekki háður því að mæta á skipulagðar æfingar eins og í mörgum hópíþróttum. Ég var aðeins í sundi en snéri mér alveg að golfinu. Það er gott að geta ráðið sér sjálfur og vera með vinunum úti á golfvelli. Mér finnst gaman að keppa og auðvitað er skemmtilegast þegar manni gengur vel. Það gerist ekki alltaf og maður verður að taka því. Ég reyni að vera jákvæð á golfvellinum, sérstaklega þegar mér gengur ekki nógu vel. Það skiptir miklu máli. Ég verð stundum stressuð, t.d. í úrslitaleikjum eða stórum mótum en er það ekki eðlilegt,“ segir þessi unga golfkona sem hefur heillað marga með framkomu sinni. „Maður sér ekki á henni hvort henni gangi vel eða illa á golfvellinum,“ segir móðirin stolt sem græðir tugi kílómetra í göngu í hverri viku með stelpunni. 

Fjóla stundar golfið stíft og spilar helst 18 holur daglega auk þess að æfa. Hún er á Hólmsvelli í Leiru flesta daga frá vori og fram á haust. „Ég spila mikið með Loga (Sigurðssyni, klúbbmeistara GS) og ég er eina stelpan sem er að æfa og keppa í golfi. Ég er með golfleiðsögn á morgnana og er að kenna yngri stelpum og vonandi koma fleiri. Íþróttin er alveg jafn mikið fyrir stelpur eins og stráka. Ég æfi með bestu strákunum í klúbbnum og sumir eru orðnir meira en fertugir en þeir eru allir mjög skemmtilegir, sérstaklega þó Guðmundur Rúnar Hallgrímsson. Hann er mjög góður í golfi og líka svo góður við alla og hann er bara besti vinur minn.“

Og hann var mættur í holukeppnismótið til að fylgjast með þér í úrslitaleiknum?

„Hann kom og var kylfusveinn hjá mér í úrslitaleiknum í Íslandsmótinu í holukeppni í Grafarholti. Mamma var á pokanum hjá mér fyrstu sex holurnar og svo tók Guðmundur Rúnar við. Hann var að fylgjast með mér og var svo til í að vera kylfusveinn hjá mér. Það var frábært að hafa hann og við mamma buðum honum að borða eftir sigurinn.“ 

En mamma þín hefur verið með þér alltaf þegar þú ert að keppa?

Já, það er frábært og ómetanlegt að fá svona stuðning frá foreldrum og hún er alltaf með mér í þessu öllu og líka úti á golfvelli. Er kylfuberinn minn í öllum mótum.“

Fyrirmyndir Fjólu Margrétar eru Ólafía Þórunn Kristinsdóttir og Guðrún Brá Björgvinsdóttir og svo Guðmundur Ágúst Kristjánsson, en þau þrjú hafa verið meðal bestu kylfinga landsins undanfarin ár. 

Sigurpáll Geir Sveinsson er þjálfari Fjólu Margrétar og hún segir hann frábæran golfkennara.

Hvert stefnir þú í golfinu?

„Ég vil fara í skóla í Bandaríkjunum en langar líka að komast á mót erlendis.

Stærsta mót ársins er um helgina, Íslandsmótið í höggleik unglinga og Fjóla Margrét verður þar meðal keppenda og stefnir á að gera góða hluti þar. Mótið sem hún vann var næst stærsta mót ársins, Íslandsmótið í holukeppni en henni finnst það fyrirkomulag skemmtilegra en höggleikurinn. Það verður því fróðlegt að sjá hvernig henni gengur í höggleiksmótinu.

Þegar hún var spurð um hverjir væru uppáhalds golfvellir hennar var hún fljót til svars.

„Jaðarsvöllur á Akureyri og Urriðavöllur eru skemmtilegastir. Leiran er líka meðal uppáhaldsvalla. Sextánda brautin í Leiru er í uppáhaldi en ég á þó eftir að fara holu í höggi, þar eða einhvers staðar annars staðar,“ segir ein efnilegasta golfkona landsins.