Sólborg Guðbrandsdóttir
Sólborg Guðbrandsdóttir skrifar
laugardaginn 23. nóvember 2019 kl. 11:04

Daði glímir við ástina, ástarsorg, sjálfsmyndina og gredduna

Ný bók eftir kynfræðinginn Siggu Dögg

Daði er nýjasta afkvæmi Siggu Daggar kynfræðings. Sagan um Daða fjallar um ungan gaur sem glímir við ástina, ástarsorg, sjálfsmyndina og gredduna. Daði spilar sig svalan fyrir félögunum og stelpunni sem hann er skotinn í en undir yfirborðinu krauma mótsagnakenndar tilfinningar sem Daði reynir að átta sig á og vinna úr. Bókin byggir á algengum spurningum og umræðum drengja úr kynfræðslu Siggu Daggar kynfræðings um land allt undanfarin tíu ár. Daði er sjálfstætt framhald bókarinnar kynVeru sem kom út árið 2018.

Það er algengt að nota dæmisögur í kynfræðslu en í bókinni um Daða er það form tekið lengra. „Hér tvinnar höfundur saman raunveruleika íslenskra drengja og kynfræðslu í eina sögu þar sem lesandinn nær að spegla sig í persónunum en einnig að fræðast um tilfinningar, samskipti, kynhneigð og eigin kynveru,“ segir í kynningu á bókinni.

Sólborg Guðbrandsdóttir hitti Siggu Dögg og ræddi við hana um Daða. Viðtalið er í spilaranum hér að ofan.