Föstudagur 23. apríl 2021 kl. 09:32

Aldamótatónleikar í beinni útsendingu á vf.is í kvöld

Nemendafélag Fjölbrautaskóla Suðurnesja, NFS, stendur fyrir streymistónleikum í kvöld, föstudagskvöld. Á tónleikunum koma fram Magni (Á Móti Sól), Hreimur (Land & Synir), Jónsi (Svörtum Fötum), Einar Ágúst (Skítamórall), Gunni Óla (Skítamórall) ásamt frábærum hljóðfæraleikurum. Tónleikarnir verða aðgengilegir í spilaranum hér að ofan.

Um er að ræða hina svokölluðu Aldamótatónleika sem haldnir hafa verið við miklar vinsældir á undanförnum árum. Aðeins verður hægt að horfa á tónleikana í beinu streymi en upptaka verður ekki aðgengileg að tónleikum loknum.